Avsnittsbeskrivning
Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Þátturinn hefst með tímaferðalagi 750 ár aftur í tímann til þess tíma þegar snilldarverkið Njála var skrifuð. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, þykist vera búinn að finna höfundinn en fræðimenn segja það ‘’tóma vitleysu’’.
Fjallað um ofbeldi gegn lögreglunni - sem mikið var rætt í vikunni og virðist af einhverjum ástæðum vera látið refsilaust að mestu.Þau koma til mín Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, og Hildigunnur Einarsdóttir, lögreglukona.
Þeim sem eru 80 ára og eldri á Íslandi mun á næstu 10 árum fjölga um 44%; meira en tvöfalt hraðar en öðrum aldurshópum að meðaltali.Alma Möller, heilbrigðisráðherra í ítarlegu viðtali um hvaða áskoranir þetta hefur í för með sér.
Sjóslysið fyrir austan land yfirskyggði auðvitað allt annað sem gerðist í liðinni viku. Aðdáun á því stórkostlega björgunarafreki sem unnið var - blandast harminum yfir örlögum þeirra þriggja skipverja sem fórust – og samúð með ættingjum þeirra og ástvinum.Brynhildur Ásta Bjartmarz var flugmaður á þyrlunni í þessum hetjulega og háskalega björgunarleiðangri - og svo ólíkindalega háttar til að hún er stjúpdóttir Benonýs Ásgrímssonar, sem er goðsögn í lifanda lífi eftir hálfa öld hjá Gæslunni – lengst af sem þyrluflugstjóri. Feðginin ræða málin.
Webbplats: bylgjan989.podbean.com
