Shownotes
Við verðum á íþróttavellinum í þættinum í dag. Undanfarna mánuði hefur Rússum orðið sitthvað ágengt í að hnekkja banni á þátttöku rússneskra íþróttamanna í alþjóðlegum keppnum. Alþjóðaólympíunefndin og nokkur sérsambönd hafa stigið það skref, en það mætir mikilli andstöðu hjá íþróttasamböndum og stjórnvöldum margra þjóða, sem hafa sjálfar gripið til ráðstafana til að koma í veg fyrir þátttöku rússneskra íþróttamanna. En hvers vegna er banninu aflétt og hvað vilja Rússar fá fram með þátttöku í alþjóðlegum íþróttum? Hallgrímur Indriðason skoðar málið með sérfræðingi í rússnesku íþróttaþvætti.
Margir íþróttaáhugamenn kannast við auglýsinguna „Visit Rwanda“ eða heimsækið Rúanda. Þessi einfalda auglýsing hefur verið á búningum þekktra knattspyrnufélaga og á auglýsingaskiltum á stórum íþróttaviðburðum, fyrir augum milljóna áhorfenda. Að baki þessum skilaboðum liggur mikil fjárfesting. Stjórnvöld hafa notað íþróttir til að vekja áhuga á landinu og laða að ferðamenn og fjárfesta. Nú er komið að einu metnaðarfyllsta verkefninu til þessa, að fá Formúlu 1 til Rúanda. Og þarna eru skarpar andstæður. Rúanda er fátækt ríki þar sem stjórnvöld þurfa að mæta brýnum þörfum íbúa fyrir heilbrigðisþjónustu, húsnæði og aðra grunnþjónustu. En í Formúlu 1 flæða peningarnir og yfirvöld í Rúanda vilja tengja þessa tvo heima saman. Þá kemur að stóru spurningunni: Hversu miklu á ríki að verja til að sýna heiminum glansmynd af sjálfu sér og hvað skilar sér í raun og veru til almennings heima fyrir?
Website: ruv-radio.akamaized.net
