Show notes
Í þætti vikunnar tökum við fyrir umræðu sem er nauðsynleg og mikilvæg, en nennum ekki alltaf að hugsa of mikið um: hlaupaeymsli, hlaupameiðsli, fyrirbyggjandi aðferðir, hlaupamýtur og allt þar á milli.
Til að hjálpa okkur að greina þetta umfjöllunarefni fengum við í settið einn öflugasta sjúkraþjálfara hér á landi, Hildi Kristínu Sveinsdóttur sjúkraþjálfara og framkvæmdastjóra Sjúkrasport, betur þekkt sem Hildur Hlaupahvíslari.
Hún hefur áralanga reynslu af meðferð við eymslum og meiðslum hlaupara á öllum getustigum og mun hjálpa okkur að ræða þetta þarfa umfjöllunarefni á meðal okkar…
Website: podcasters.spotify.com
