Shownotes
Bob Dylan á afmæli - hann er 85 ára í dag og þess vegna er Rokkland vikunnar helgað honum og hans músík. Bob Dylan er einn merkasti tónlistarmaður sögunnar og ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var 15 ára eða þar um bil. Hann var hafinn upp til skýjanna af ungu fólki um allan heim þegar hann kom fram fyrst fyrir meira en 60 árum – rétt rúmlega tvítugur spámaður með gítar sem söng fyrst og fremst um óréttlæti heimsins og illsku mannanna. Hann olli mörgum miklum vonbrigðum þegar hann fór af þeirri braut nokkrum árum síðar og fór að spila einskonar Bítlarokk – syngja illskiljanlega texta –…
Website: ruv-radio.akamaized.net

