Notas do episódio
Mánudagur 23. nóvember
Manngildi - 5. þáttur: Þegar móðir ákveður að breyta kerfinu
Gestur Manngildis að þessu sinni er Vigdís Gunnarsdóttir, lögfræðingur, móðir einhverfs drengs og stofnandi Þorláksskóla. Í þættinum kynnumst við Vigdísi og ræðum hvernig reynsla hennar af þjónustukerfinu varð að baráttu fyrir betri tækifærum einhverfra barna. Við fjöllum um Biðlisti.is, sem hún stofnaði ásamt öðrum mæðrum til að vekja athygli á löngum biðlistum eftir greiningu og þjónustu, og Þorláksskóla, nýjan sérhæfðan skóla fyrir einhverf börn. Einnig ræðum við stöðu einhverfra barna í íslensku skólakerfi, skóla án aðgreiningar, rétt foreldra til að velja viðeigandi úrræði og hvað þurfi að breytast til að tryggja öllum börnum menntun við hæfi. Persónulegt samtal um móðurhlutverkið, baráttuna við kerfið og kjarkinn til að skapa nýjar lausnir. Manngildi – Samtal sem breytir samfélagi.
Site: samstodin.simplecast.com

