Przejdź do treści
Global sound
Spegillinn

Spegillinn

Landsnet skilgreinir vaxtarsvæði, umdeild orð Mette Fredriksen

· 20 min · Odcinek 920

Notatki do odcinka

Á haustfundi Landsnets sem haldinn var í dag kom m.a. fram að Landsnet hefur skilgreint átta vaxtarsvæði á landinu þar sem mikil eftirspurn er eftir raforku, möguleikar til orkuframleiðslu til staðar og hagkvæmt að styrkja flutningskerfið til að anna þessari eftirspurn. Landsnet ætlar að forgangsraða uppbyggingu á þessum svæðum.

Einnig kom fram að Landsnet mun á næstu 10-15 árum væntanlega ekki tengja fleiri en þrjá til fjóra vindmyllugarða við flutningskerfið. Ástæðan er sú að óstöðug raforkuframleiðsla frá vindmyllum - sem fer jú eftir því hvernig vindar blása - skapar alveg sérstakar áskoranir í flutningi raforku.

Rúnar Pálmason ræddi við Rögnu Árnadóttur, forstjóra Landsnets.

„Ég er Evrópubúi, Dani og Álaborgari. Og ég er heldur ekki fylgjandi mikillar umskiptingar landsmanna,“ sagði Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur í hlaðvarpsviðtali í vikunni. Hún lét ekki þar við sitja heldur sagðist vilja það sem hún kallaði „sterka meirihlutamenningu“ og að „við“ - það er að segja Danir - væru „danskt samfélag, og við erum upprunalegur kynstofn, sem er danskur að þjóðerni.“

Ævar Örn Jósepsson ræddi við Kristínu Loftsdóttur prófessor í mannfræði, m.a. um hvort eitthvað væri til sem heitir upprunalegur, danskur kynstofn.

Umsjón: Rúnar Pálmason
Tæknimaður: Mark Eldred

Strona: ruv-radio.akamaized.net

Na żywo, ostatnia godzina: 11 261 utworów na 5 695 stacjach w 140 krajach

Odkrywaj świat przez radio

Więcej sposobów na odkrywanie (7)

Usłyszałeś coś fajnego? Zapisz to albo otwórz od razu w Spotify.

★ Artysta tygodnia Najszybciej rosnący w radiu w tym tygodniu
Twój utwór tutaj? Od € 9 tygodniowo →
MásRadioSłuchaj dalej