Episodebeskrivelse
Hvað fær okkur til að láta eigin hagsmuni víkja fyrir einhverju stærra en okkur sjálfum? Hvers vegna fórna foreldrar öllu fyrir börnin sín? Hvað heldur þjóð raunverulega saman þegar á reynir? Og hvað gerist þegar við hættum að trúa á nokkurn skapaðan hlut sem krefst af okkur fórn og sjálfsaga?
Í bókinni Return of the Strong Gods notar R. R. Reno hugtakið „sterku guðirnir“ um þau bönd sem binda okkur saman: fjölskylduna, ættjarðarástina, trúna og sannleikann. Reno heldur því fram að skiljanlegur ótti við nýtt ofstæki eftir síðari heimsstyrjöld hafi með tímanum snúist upp í tortryggni gagnvart…
Nettsted: podcasters.spotify.com

