Epizódjegyzetek
Hér er hún; Þriðja tilraunin að því að koma leikinni kvikmyndaseríu af stað eftir þekktu slagsmálaleikjunum frá Capcom. Nú er sett allt í botn hvað ‘90s fílinginn varðar og í rauninni alla þvæluna eins og hún leggur sig. Hefur kannski loksins náðst að gera vel heppnaða Street Fighter mynd?
Grínistinn, fastagesturinn og poppkúltúrs-sérfræðingurinn Bjarni Gautur er mættur aftur til Bíófíkla þar sem saman velta þeir fyrir sér ástand tölvuleikjamynda, skoða alls konar samanburði og klóra sér jafnframt í kollinum yfir því hvers vegna Hollywood þorir sjaldan að fara alla leið með ‘vitleysuna’…
Weboldal: podcasters.spotify.com

