Shownotes
Hver elskar ekki Dan Stevens? Svona í alvörunni… Þennan fáránlega myndarlega og hæfileikaríka mann sem gladdi fyrst ófáu hjörtun með hlutverki sínu í Downton Abbey áður en hann fór að spreyta sig í margs konar litríkum rullum. Misgáfulegum kannski, en allavega fjölbreyttum.
Kómíski hryllingsþrillerinn The Guest markaði gífurleg kaflaskil hjá Stevens þar sem hann þótti ekki lengur vera bara “gæinn úr Downton Abbey,” heldur allur fjandinn. Að sama skapi fór Maika Monroe að rísa hærra upp stjörnuhimininn með þessari næstum-því-óflokkanlegu mynd. Engu að síður er þetta bráðskemmtileg költ-mynd…
Website: podcasters.spotify.com

