Beschrijving
Í þriðja þætti Blaðvarpsins fjöllum við um tjáningarfrelsið og hvernig það snýst ekki bara um rétt blaðamanna til að tjá sig, heldur líka um rétt almennings til þess að fá upplýsingar. Einnig hvernig aðgengi blaðamanna að upplýsingum og vettvangi atburða tengist þessu hugtaki. Gestur þáttarins er Flóki Ásgeirsson lögmaður. Blaðvarpið er hlaðvarp Blaðamannafélags Íslands um blaðamennsku og fjölmiðla. Umsjónarmenn eru Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Guðmundur Pálsson.

