Ir para o conteúdo
Global sound
Draugar fortíðar

Draugar fortíðar

#151 Landbúnaður í Albaníu

· 1 h 56 min · Episódio 119

Notas do episódio

Flosi hefur oft sagt að hægt sé að gera nær allt áhugavert, nema mögulega landbúnaðarsögu Albaníu. Þetta er svona göngugrína (e. running gag) sem hlustendur þekkja ágætlega. Í hverjum þætti fá styrktaraðilar á Patreon að velja um þrjú umfjöllunarefni. Hið hlutskarpasta verður svo tekið fyrir í einum þætti. Það er Flosi sem sér um að koma með tillögur að þætti. Hins vegar er frestunarárátta hans stundum svo alvarleg að Baldur þarf rækilega að minna hann á. Síðast er þetta átti sér stað setti Baldur honum þá afarkosti að vera tilbúinn á tíma með efnið, ellegar myndi Baldur velja þrjú efni og yrði Flosi að hlíta niðurstöðunni. Flosi brást og því gátu hlustendur valið um eftirtalin þrjú atriði: 1. Saga vatnshelds klæðnaðar. 2. Gláka. 3. Landbúnaðarsaga Albaníu. Er skemmst frá því að segja að númer þrjú vann með yfirburðum. Hægt er að saka Flosa um margt, enda breyskur maður með afbrigðum en hugleysi býr hann þó ekki yfir. Því brást hann vel við þessari áskorun og þátturinn fjallar um sögu Albaníu með fókus á landbúnað. Tókst Flosa að gera efnið áhugavert? Dæmið sjálf.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna

Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

Site: draugarfortidar.podbean.com

Ao vivo, última hora: 11.155 músicas em 5.369 rádios de 128 países

Descubra o mundo pelo rádio

Mais formas de descobrir (7)

Ouviu algo legal? Salve ou abra direto no Spotify.

★ Artista da semana A maior subida na rádio esta semana
A tua música aqui? Desde € 9 por semana →
Radio-S-Pop InternationalContinuar ouvindo