Gå til indhold
Global sound
Draugar fortíðar

Draugar fortíðar

#156 Þorskastríðin. 1. þáttur: Aðdragandi

· 1 t. 46 min. · Episode 120

Episodebeskrivelse

Á 20. öld átti Ísland í hatrammri deilu um fiskveiðilögsögu við margar þjóðir. Hörðust var deilan við Bretland sem sendi sjálfan flotann í þrígang á Íslandsmið til að skakka leikinn. Bretar göntuðust með að ekki væri nóg að það væri "Cold War", heldur væri nú komið "Cod War", eða þorskastríð. Nafnið hefur fest sig í sessi þrátt fyrir að þetta hafi á engan hátt verið stríð, í fullri merkingu þess orðs. Þessi deila er merkileg að mörgu leyti. Nú gátu stórveldi ekki lengur vaðið yfir þau smáu í krafti herstyrks. Ísland og Bretland voru saman í hernaðarbandalagi og vera Íslands þar var afar mikilvæg hvað öryggi Bretlands varðaði. Breytingar og umbætur á hafréttarlögum spiluðu einnig stórt hlutverk og nýttu Íslendingar sér það óspart, með góðum árangri. Deilan varð þó svo hörð að ýmsir óttuðust að Ísland myndi jafnvel senda bandaríska herinn úr landi. Ekkert varnarmálaráðuneyti á Vesturlöndum vildi sjá það gerast. Deilan er því ansi áhugaverð hvað alþjóðasamskipti og sögu kalda stríðsins varðar. Allir fjórir þættir septembermánaðar verða um þorskastríðin. Við mælum með því að rifja upp kynni við þátt númer 79 sem heitir "Togaraskelfirinn" og fjallar um landhelgisgæslu Dana við Ísland í upphafi 20. aldar.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna

Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

Website: draugarfortidar.podbean.com

Live, seneste time: 11.286 sange på 4.581 stationer i 120 lande

Opdag verden gennem radioen

Flere måder at opdage på (7)

Hørt noget godt? Gem det, eller åbn det direkte i Spotify.

★ Artist of the week The fastest riser on the radio this week
Your song here? From € 9 per week →
Charlie 97.1 KYCH FMFortsæt med at lytte