Aller au contenu
Global sound
Draugar fortíðar

Draugar fortíðar

#164 Saga Tíbet

· 1 h 46 min · Épisode 122

Notes d’épisode

Tíbet á sér ríka og flókna sögu sem nær aftur til forsögulegra tíma. Ríkið Zhangzhung, sem var til á milli 500 f.Kr. og 625 e.Kr. er talið undanfari síðari tíma tíbetska konungsríkja. Tíbetska veldið var stofnað á 7. öld og stóð fram á 9. öld. Eftir tímabil sundrungar á 9.-10. öld og endurvakningu búddismans á 10.-12. öld, urðu til þrír af fjórum helstu skólum hins tíbetska búddisma. Tíbet varð í raun sjálfstætt á 14. öld og var stjórnað af ýmsum aðalsættum næstu 300 árin. Snemma á 18. öld varð Tíbet áhrifasvæði Qing-ættarinnar og var það þar til ættarveldið féll. Árið 1959, í kjölfar stríðsátaka við Kína, flúði Tenzin Gyatso, hinn 14. Dalai Lama, í til Indlands og myndaði þar útlagastjórn. Sjálfstjórnarsvæðið Tíbet var stofnað í kjölfar innlimunar Kína í Tíbet. Sjálfstæðisbarátta og harðar ásakanir á hendur Kínverjum vegna mannréttindabrota hafa einkennt umræðuna um þetta merkilega svæði undanfarna áratugi. Kínverjar og stuðningsmenn þeirra hafa aftur á móti haldið því fram að Tíbet hafi verið langt frá því að teljast eitthvað sæluríki undir stjórn Dalai Lama. Þar hafi ríkt gamaldags lénsskipulag og fámenn aðalsætt hafi hagnast á undirokun og kúgun alþýðunnar.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna

Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

Site web: draugarfortidar.podbean.com

En direct, dernière heure : 7 096 titres sur 2 664 stations dans 118 pays

Découvrez le monde par la radio

Plus de façons de découvrir (7)

Vous avez entendu quelque chose de bien ? Enregistrez-le, ou ouvrez-le directement dans Spotify.

★ Artiste de la semaine La plus forte progression à la radio cette semaine
Ton titre ici ? À partir de € 9 par semaine →
The Real UndergroundContinuer l’écoute