Skip to content
Global sound
Draugasögur

Draugasögur

by Ghost Network®

True CrimeE · Explicit
Latest episode
BÓKIN - John Drenner Jr. málið

About this podcast

Podcast um atburði og staði sem þekktir eru fyrir draugagang.
Oftar en ekki fléttast einnig inn morð og svik 🩸
Svo ef þú elskar að ferðast og ert það sem kallast Dark tourist, kannski jafnvel smá sögunörd og hefur gaman að sakamálum, þá er þetta podcast sem þú ættir að tékka á.

Þáttastjórnendur eru hjónin Stefán John og Katrín en þau eru stofnendur og eigendur framleiðslu fyrirtækisins Ghost Network sem sérhæfir sig í hlaðvörpum. Þau halda einnig út hlaðvörpunum Mystík Podcast og Sannar Íslenskar Draugasögur ásamt því að framleiða önnur hlaðvörp á Íslenskum markaði.

Þau ferðast reglulega til að skoða draugalega staði og hafa nú þegar rannsakað nokkra af reimdustu stöðum í heimi t.d. hið eina og sanna Conjuring Hús, Sallie House, Shrewsburry fangelsið, Höfða, Hvítárnesskála og svo mætti lengi telja.

Þau hafa stundum verið kölluð drauga sérfræðingar Íslands en ásamt því að ferðast þá hafa þau einnig hjálpað mörgum Íslenskum fjölskyldum sem hafa verið að kljást við ásóknir.

Langar þig að vera partur af Draugasögu samfélaginu? Finndu Draugasögur Podcast í Patreon appinu og veldu Join For Free. Kostar ekkert en þar er allskonar draugalegt sem er eingöngu þar inni.

Þú getur einnig skráð þig í áskrift á patreon.com/draugasogur og opnað nýjan heim!

Episodes

The newest 50 of 200 episodes

  • BÓKIN - John Drenner Jr. málið · 46 minSumarið 2003 finnur John Drenner Jr. bók með undarlegum táknum í skúr í skóginum á bakvið hús ömmu sinnar. Um leið og bókin var opnuð 📖 varð líf Johns aldrei aftur eins. Raddir í…
  • Villisca Axe Murder House · 1 h 10 minÍ dag ætlum við að taka ykkur til ársins 2020. Í júní það ár gáfum við út fyrsta þáttinn okkar undir nafninu Draugasögur Podcast. Sá þáttur fjallaði um eitt frægasta og…
  • MIMICS · 52 minUndanfarnar vikur hefur eitt fyrirbæri tekið yfir TikTok. 📱 Hundruðir myndbanda. Sama mynstrið. Sama óþægilega tilfinningin. 😰 Fólk heyrir rödd sem kallar á það. Með nafni. Og…
  • The Third Man Phenomenon · 45 minHefurðu einhvern tímann heyrt sögur af fólki sem lenti í lífshættu… og sór að það hefði ekki verið eitt? 👣 Þau tala um nærveru. Rólega rödd. Einhvern sem gengur með þeim þegar…
  • Glasgow Necropolis · 1 h 2 minÞetta er fallegur staður með gönguleiðum sem mótaðar eru af fjöldagröfum, kistum sem fallið hafa um hvor aðra og rotnað saman við líkin sem eru allstaðar undir fótum þeirra sem…
  • KÓPAVOGSLÆKUR · 50 minÍbúar Kópavogs og nærliggjandi bæja hafa lengi gert sér glaðan dag með gönguferð um dalinn þar sem lækurinn rennur. Við njótum náttúrunnar, förum út með hundinn, gefum öndunum…
  • Werewolf of London Ohio · 50 minÞessi saga er óhugguleg....og hún endar öðruvísi en þig grunar Þegar að Williams fjölskyldan flytur inn í skóglendi í London, Ohio, býst hún við frið og ró. En fljótlega fór frú…
  • DUDLEYTOWN · 47 minÍ dag skoðum við draugabæ í Connecticut sem situr yfirgefin í miðjum Dark Entry skóginum.... Talið er að bölvun bæjarins hafi fylgt fyrstu íbúunum frá Englandi og að þeir sem…
  • Corpsewood Manor · 51 minÍ dag ætlum við að ferðast djúpt inní skóglendi Georgíu fylkis þar sem rústir af einu myrkasta heimili Bandaríkjanna standa enn.... Corpsewood Manor! Dr. Charles Scudder og…
  • BRÚÐARDÚKKAN ELIZABETH · 50 minÍ hjarta Rotherdam má finna fallega og dularfulla postulínsdúkku. Eigendur hennar keyptu hana á eBay á £866.66 en fengu meira en bara forngrip í fallegum brúðarfatnaði…
  • Forest of Fountinebleu · 40 minHeil og sæl elsku Draugasögu Fjölskyldan okkar! ❤️ Gleðilegan miðvikudag og verið velkomin til Frakklands 😁 Fontainebleau-skógurinn er rétt fyrir utan Parísarborg og er fallegur…
  • Dunluce Kastalinn · 43 minÁ Norður-Írlandi er eitt mikilfenglegasta og dularfyllsta mannvirki Bretlandseyja, reist á klettabrún með hluta þess á sjónum sjálfum þar sem Atlantshafið hamrar stöðugt á…
  • Kynslóðabölvun · 48 minVið segjum hluti sem við kannski ættum ekki að segja í þessum þætti... en þá er það bara þannig 😂 Í þessum óhefðbundna þætti förum við aðeins út fyrir okkar venjulega norm og…
  • Sorro Family Haunting · 58 minÞegar Sorro fjölskyldan flutti inn í húsið uppi á hæðinni fóru óútskýrðir atburðir að gerast áður en þau fluttu inn. Meira að segja áður en þau sáu húsið auglýst til sölu! Gæti…
  • Dagbók # 1 · 20 minVelkomin í fyrsta þáttinn af Dagbókinni 📖 💜 Þetta er nýr liður þar sem við setjumst niður í stofunni heima, ýtum á REC og spjöllum aðeins við ykkur. Hér förum við yfir það sem er…
  • Old Changi Hospital · 39 minÍ kvöld förum við til Singapore, þar sem gömul bygging stendur uppúr jörðinni eins og beinagrind úr fortíðinni. Það lítur út eins og venjulegt yfirgefið sjúkrahús… en þegar sólin…
  • SPIRICOM · 48 minÍ dag ætlum við að fara all-in í söguna á bakvið Spiricom - eitt af þessum tækjum sem átti að “gera manninum kleift að hringja í hina látnu” án þess að þurfa að bíða eftir að…
  • Boleskin House · 51 minVið heimsfræga vatnið Loch Ness í Skotlandi stendur tignarlegt hús sem hefur séð meiri dauða en margir kirkjugarðar. Löngu eftir hörmungar sem komu til með að dynja á svæðinu bjó…
  • McKinzie Fjölskyldan · 46 minÞegar lögreglumaðurinn Ralph Sarchie steig út á ósköp venjulega götu í Bronx þá vissi hann að þetta væri ekkert venjulegt hús 👁️‍🗨️ Hann var vanur morðum, byssuskotum og öllum…
  • HAMMERSMITH · 48 minÍ byrjun 19. aldar fór fólk í Hammersmith,í London, ekki út eftir myrkur nema með kross um hálsinn og hlaðinn riffil, fólk var logandi hrætt. Því að hvítklædd vera, sem sagður…
  • A 75 (Draugavegurinn í Skotlandi) · 37 minVegna veikinda er Stebbi sem sér alfarið um þennan þátt en með andlegum stuðningi frá Katrínu sem heyrist ferkar rám í þessum þætti en við þökkum fyrir skilninginn og fyrir…
  • Appalachia 2 · 39 minÍ þessum þætti förum við djúpt inn í dularfullan og ógnvekjandi heim Appalachia fjallanna 🏔️ Þar sem myrkraverur fela sig í rjóðrinu og raddir hinna látnu öskra..... Við segjum…
  • Appalachia 1 · 43 minÍ dag ætlum við að ferðast djúpt inn í þétt og þokuklætt skóglendið sem einkennir stórbrotið svæði sem þekkt er fyrir fegurð sína, en líka og kannski frekar fyrir allar þær…
  • 1000 Þættir - Þúsund Þakkir · 5 minFrá árinu 2020 höfum við hjónin undir merkjum Ghost Network framleitt eitt þúsund podcastþætti með hlaðvörpunum Draugasögur, Mystík Podcast og Sannar Íslenskar Draugasögur…
  • La Mussara · 43 minÍ þessum þætti leggjum við leið okkar til vinaþjóðar okkar á Spáni, upp í fjöll Katalóníu, þar sem tíminn sjálfur virðist stundum standa í stað og þar sem fólk hverfur án…
  • Freetown Skógurinn · 44 minKomið þið sæl kæru hlustendur 🤗 Í dag ætlum við að segja ykkur ROSALEGA draugasögu! Við erum stödd í bænum Freetown sem er staðsettur í Massachusetts fylki. Við ætlum þó ekki að…
  • Jersey Djöfullinn 😈 · 45 minOkkur hefur langað til þess að taka þennann fyrir í langan tíma 😈 Við erum stödd í New Jersey, heimkynni the Jersey Devil. Söguna um djöfulinn má rekja aftur aldirnar til ársins…
  • Bothell Hell House (Demons in Seattle) · 46 minÍ þessum þætti förum við inní ansi óþægilegt hús... en við erum svosem öllu vön 🏡 Bothell Hell House hefur það verið kallað 🔥😬 Venjulegt úthverfahús á pappír, en í raun…
  • SUÐURSKAUTSLANDIÐ ❄️ · 45 minÍ ísköldum vindinum á einmanalegasta stað jarðar þar sem engin sál ætti að geta lifað, andar heil heimsálfa eins og forboðið skrímsli úr ísjaka. Síðasti áfangastaðurinn sem við…
  • Pickfair Estate · 1 h 15 minHér erum við með þátt sem fellur undir Haunted Hollywood seríuna okkar 😉 Við ætlum að taka fyrir hið víðfræga Pickfair Estate en sagan er ekki ósvipuð Mullholland Farm nema hvað…
  • Bille Creek Village · 44 minÞað bjó aldrei neinn í þorpinu þó það sé samt morandi í húsum, kirkjum, verslunum og skólabyggingum. Húsin eru nefnilega eldri en þorpið sem þau standa á. En hvernig stenst það?…
  • ASTROWORLD · 56 minÞetta átti að vera skemmtun, upplifun sem fólk kæmi aldrei til með að gleyma. Í smá stund áttu tónleikagestir að ganga inn um munninn á uppblásinni eftirlíkingu af rapparanum…
  • LINA · 46 minAndleg veikindi eða djöfulleg andsetning... er hægt að greina þar á milli? Í raunveruleikanum þá er það nauðsyn. 85% allra tilkynntra atvika um djöfullegar árásir eiga sér…
  • Aradale Geðveikrahælið · 43 minÍ dag erum við stödd í the land down under, betur þekkt sem Ástralía. Nánar til tekið erum við í borginni Ararat í suð-vestur Victoria um 198 kílómetra frá Melbourne. Bygging á…
  • Húsið á Church Street · 48 minSagan okkar gerist árið 1974 í litla bænum Standish í USA þar sem Randy Ervin hafði búið allt sitt líf. Randy hafði verið svolítið leitandi í lífinu, hann fékk vinnu hér og þar…
  • PIGMAN · 44 minÍ dag erum við mætt til þorpsins Anolga sem er að finna í Erie County í vestur hluta New York fylkis um 35 kílómetra suð vestan af Buffalo. Þar ætlum við að kafa ofaní goðsögnina…
  • EKKI SEGJA ORÐ ! · 49 minVið hvetjum ykkur til þess að hlusta á þennan þátt ein uppí rúmi með slökkt ljósin! Þetta er okkar tími, kæru hlustendur, og þessi mánuður er STÚTFULLUR af skelfilegum…
  • Parliament Square · 39 minSMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNNI Á HALLOWEEN Í ALLAN GHOSTÓBER🌙 Í hjarta Edinborgar, þar sem fornbyggingar og þröngar götur sameinast í dáleiðandi og draugalegum…
  • Brúðumeistarinn · 40 minSMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNNI Á HALLOWEEN Í ALLAN GHOSTÓBER🌙 Djúpt inní skuggum Rússlands sat ómerkilegt hús og inní því bjó rússneskur sagnfræðingur ásamt…
  • Jennifer Patterson · 41 minSMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNNI Á HALLOWEEN Í ALLAN GHOSTÓBER🌙 Þegar Jennifer Patterson flytur inní huggulegt, eldra hús, er hún í skýjunum. Það er mátulega…
  • Tauton State Geðveikrahælið · 39 minSMELLTU HÉR OG VERTU MEÐ DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNNI Á HALLOWEEN Í ALLAN GHOSTÓBER🌙 Djúpt inní hjarta Massachusetts situr þessi gamli spítali. Við erum mætt á stað sem átti að vera…
  • Octagon Hall · 38 minStarfsfólkið í Octagon Hall hefur verið að kljást við hræðilega ásókn. Allir hafa upplifað eitthvað, sumir hafa verið klóraðir, aðrir hafa séð eitthvað yfirnáttúrulegt, en…
  • ESTER COX · 47 minKomiði sæl elsku besta Draugasögu Fjölskylda, málið sem við ætlum að taka fyrir í dag er eitt af frægustu Poltergeist málunum sem vitað er um. Við höfum lengi ætlað okkur að taka…
  • Congelier Setrið · 49 minEf þú myndir fara á google og skrifa Congilier Mansion haunted mynduru fá endalaust af greinum þar sem fólk er að segja þér að þetta sé eitt reimdasta húsið í Bandaríkjunum. Að…
  • Barclay Hótelið · 51 minÍ þætti dagsins heimsækjum við eitt dularfyllsta og umtalaðasta hótel Los Angeles - Barclay Hótelið sem er oft sagt vera stóri bróðir hið óhuggulega Cecil hótels! Byggt árið 1896…
  • Conjuring: The Last Rites - Smurl Fjölskyldan · 55 minFyrir 5 árum síðan tókum við fyrir málið um Smurl fjölskylduna. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og nú þegar þessi þáttur er að koma út styttist í að Conjuring: The Last…
  • Demon Child (Foster Fjölskyldan) · 39 minHefur þú átt ímyndaðan vin? Eða barnið þitt? Sjálfsagt er svarið já.... Jafnvel við báðum spurningunum. En hvað ef þú ferð skyndilega að heyra ímyndaða vininn spjalla við barnið…
  • Bhangarh Fort · 40 minÞessi staður er einn sá draugalegasti á Indlandi og það er talað um að viðkvæmt fólk eigi alls ekki að fara þangað í heimsókn! En í dag eru það aðalega túristar sem fara þangað…
  • Nikko Jenkins · 45 minKomiði sæl elsku bestu ! Þessi þáttur er með örlítið öðruvísi sniði þar sem við förum yfir mál morðingja. Nema þessi ágæti maður sagði að hann væri vinna sín verk í nafni…
  • Becker Fjölskyldan · 55 minDraugasaga vikunnar er ROSALEG kæru hlustendur ‼️ Við ætlum að segja ykkur frá Becker fjölskyldunni sem að flutti inní gamallt hús í norðurhluta Chicago 🇺🇸 Þetta hús stóð í…

Live, last hour: 13,417 songs on 5,678 stations in 122 countries

Discover the world through radio

More ways to discover (9)

Heard something good? Save it, or open it straight away in Spotify.

Radio 538 luisteren - Live!Popular right now