About this podcast
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur.
Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi.
Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Episodes
- Black Hole Sun – Grimmdin, girndin og gáleysið · 1 h 17 minSoundgarden – Black Hole Sun Óreimuð hermannastígvél. Hvít frosin mús tekin úr tupperware-boxi. Blautur labrador hundur hleypur eftir engi. Óveðurskýi hrannast upp á himni…
- Anarchy in the UK – Stærsta svindl sögunnar · 56 minSex Pistols – Anarchy in the UK Taktu kjötmassa og láttu hann skoppa eins og pinball kúlu á milli blautra skuggasunda og lostaklúbba og hrærðu honum svo ofan í karríkássu þúsund…
- Laura’s Theme – Lerki og lík · 49 minAngelo Badalamenti og David Lynch – Laura Palmer’s theme (from Twin Peaks) Tré, skógur, rökkur. Móða á gleraugum. Blaut laufblöð. Gulir plastborðar flaksa. Grár himinn…





