Σημειώσεις επεισοδίου
Í þætti vikunnar mættu Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í viðtal. Þær gerðu upp vel heppnaðan fund Kvennahreyfingarinnar í vikunni sem bar yfirskriftina „Ofurkonan vs. tradwife“.
Í viðtalinu ræddu þær við Sonju og Þórhall Val um jafnréttisbaráttuna, uppgang úreltra kynjahugmynda, ýmsar ranghugmyndir um leikskólavist, þátttöku karla í jafnréttisumræðunni og margt fleira.
Í fyrri hluta þáttarins ræddu Ásta Guðrún, Þórður Snær og Þórhallur Valur um lélegustu reiknivél sögunnar sem Framsókn kynnti…
Ιστότοπος: podcasters.spotify.com

