Přejít k obsahu
Global sound
Ráðgátan

Ráðgátan

RÁÐGÁTAN #1 - Sökudólgurinn sem leyndist í augsýn

· 50 min · Epizoda 1

Poznámky k epizodě

RÁÐGÁTAN er nýtt hlaðvarp frá SPOR um klíníska rökleiðslu. Í hverjum þætti glíma þrír læknar við óþekkt sjúkratilfelli, byggja upp mismunagreiningu og reyna að komast á sporið og leysa ráðgátuna – skref fyrir skref.
Mæði, versnandi öndunarbilun og sérkennilegar lungnabreytingar. Í fyrsta þætti RÁÐGÁTUNNAR glímir hópurinn við tilfelli þar sem lausnin leyndist í augnsýn.
🎙️ Þáttastjórnendur eru Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum, Teitur Ari Theodórsson, sérnámslæknir í lyflækningum, og Hildur Jónsdóttir, lyflæknir og kennslustjóri sérnáms í lyflækningum. Með þeim í hverjum þætti er gestalæknir sem að þessu sinni er Hörður Tryggvi Bragason, sérnámslæknir í lyflækningum.
RÁÐGÁTAN er hlaðvarp frá SPOR um klíníska rökleiðslu. RÁÐGÁTAN er ætluð til fræðslu og skemmtunar og kemur ekki í stað ráðgjafar læknis. Sjúkratilfelli eru gerð ópersónugreinanleg og einstökum atriðum kann að hafa verið breytt til að tryggja persónuvernd. Skoðanir sem koma fram í þættinum eru skoðanir þátttakenda og endurspegla ekki endilega afstöðu vinnustaða þeirra eða annarra stofnana.
Lagið heitir Viper's Drag er er frá 1934, samið af Thomas Wright Waller og flutt af Fats Waller.

Web: radgatan.podbean.com

Živě, poslední hodina: 11 991 skladeb na 5 880 stanicích v 141 zemích

Objevte svět prostřednictvím rádia

Další způsoby objevování (7)

Slyšeli jste něco pěkného? Uložte si to, nebo to otevřete rovnou ve Spotify.

★ Artist of the week The fastest riser on the radio this week
Your song here? From € 9 per week →
Rosa Scotia RadioPokračovat v poslechu