Naar de inhoud
Global sound
Ráðgátan

Ráðgátan

RÁÐGÁTAN #2 - Fingrafarið á frumuhimnunni

· 1 u 6 min · Aflevering 2

Beschrijving

RÁÐGÁTAN er nýtt hlaðvarp frá SPOR um klíníska rökleiðslu. Í hverjum þætti glíma þrír læknar við óþekkt sjúkratilfelli, byggja upp mismunagreiningu og reyna að komast á sporið og leysa ráðgátuna – skref fyrir skref.
Í öðrum þætti RÁÐGÁTUNNAR glímir hópurinn við nýtt tilfelli þar sem vísbendingarnar leiða þá sífellt dýpra, allt niður á frumuhimnuna. Hvað segir fingrafarið sem þar leynist og getur það leitt hópinn að réttri greiningu?
🎙️ Þáttastjórnendur eru Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum, Teitur Ari Theodórsson, sérnámslæknir í lyflækningum, og Hildur Jónsdóttir, lyflæknir og kennslustjóri sérnáms í lyflækningum. Með þeim í hverjum þætti er gestalæknir sem að þessu sinni er Elías Eyþórsson, lyflæknir á Landspítala.
RÁÐGÁTAN er hlaðvarp frá SPOR um klíníska rökleiðslu. RÁÐGÁTAN er ætluð til fræðslu og skemmtunar og kemur ekki í stað ráðgjafar læknis. Sjúkratilfelli eru gerð ópersónugreinanleg og einstökum atriðum kann að hafa verið breytt til að tryggja persónuvernd. Skoðanir sem koma fram í þættinum eru skoðanir þátttakenda og endurspegla ekki endilega afstöðu vinnustaða þeirra eða annarra stofnana.
Lagið Viper’s Drag er frá árinu 1934, samið af Thomas Wright Waller og flutt af Fats Waller.

Website: radgatan.podbean.com

Live, afgelopen uur: 7.340 nummers op 2.554 zenders in 125 landen

Ontdek de wereld via de radio

Meer manieren om te ontdekken (7)

Iets moois gehoord? Bewaar het, of open het direct in Spotify.

★ Artiest van de week De snelste stijger op de radio deze week
Jouw nummer hier? Vanaf € 9 per week →
Rock The World - Stadium RockVerder luisteren