Show notes
Í Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum- Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari og kennari en hann hefur innréttað iðnaðarhúsnæði sem er í senn ævingahúsnæði fyrir hljómsveitir – hljóðver – tónlistarskóli og félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ætlar sér að vera í músík og vera í hljómsveit. Miðstöðin hefur alið af sér hljómsveitir eins og White Signal – Karma Brigade – 5K sem spilar meðal annars á Kaleo tónleikunum á Þingvöllum – og…
Website: ruv-radio.akamaized.net

