Notatki do odcinka
Samtök skattgreiðenda hafa gefið út tvö ný gagnvirk mælaborð og Arnar Arinbjarnarson verkfræðingur og sérfræðingur Samtaka skattgreiðenda kemur til okkar í þáttinn til að fræða okkur um þetta. Fyrra mælaborðið nær yfir öll 62 sveitarfélög landsins með gögnum úr ársreikningum sem ná aftur til ársins 2002 og fram til 2024. Viðmótið er skýrt og notandi velur sveitarfélag og fær fullbúna sundurliðun á útgjöldum, tekjum, skuldum, lýðfræði og þróun síðustu rúmlega tveggja áratuga.
Síðara mælaborðið gerir notendum kleift að leita beint í 1,1 milljón greiðslna sem Reykjavíkurborg hefur innt af hendi…
Strona: podcasters.spotify.com

