About this podcast
Björn Berg ræðir um persónuleg fjármál og peninga á mannamáli.
Spurningum hlustenda er svarað og tekur Björn fyrir málefni sem snerta fjárhag okkar með einum eða öðrum hætti. Ýmislegt er til umræðu, svo sem sparnaður, lán, lífeyrir, fjárfestingar og ákvarðanir sem taka þarf í daglegum rekstri heimilisins.
Markmið hlaðvarpsins er að bæta fjármalalæsi á Íslandi með því að gera peningamál skýrari og aðgengilegri.
Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi, fyrirlesari og höfundur bókarinnar Peningar.
Ert þú með spurningu fyrir þáttinn? Sendu hana inn hér.
Episodes
- Afkomukvíði, jólasparnaður og dýrasti tölvuleikur allra tíma · 40 min · Season 1 Episode 5Björn Berg ræðir um afkomukvíða vegna jóla, hversu mikið dýrari jólin verða en í fyrra og hvernig draga megi úr útgjöldum. Spurningu hlustanda er svarað, sem hefur áhyggjur af…
- Fjárfestingar - 5 algeng mistök og hlutabréfakaup · 42 min · Season 1 Episode 4Björn Berg ræðir ýmsar hliðar fjárfestinga. Rætt er um fimm algeng mistök almennra fjárfesta á hlutabréfamarkði. Hvernig varð Volkswagen verðmætasta fyrirtæki heims? Er betra að…
- Útsöludagarnir framundan - Má gefa börnunum sínum peninga? · 40 min · Season 1 Episode 3Páll Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður er gestur þáttarins. Hann útskýrir meðal annars muninn á sambúð og hjónabandi þegar keypt er íbúð og hvernig foreldrar mega styrkja börnin…
- Hrekkjavakan - Hræðileg mistök og tekjuhæstu hryllingsmyndirnar · 32 min · Season 1 Episode 2Í sérstökum hrekkjavökuþætti er er rætt um hræðileg mistök sem starfsfólk í fyrirtækjum hefur gert, litið er á tekjuhæstu hryllingstölvuleikina og tekjuhæstu hryllingsmyndirnar…
- Hvað er að kunna að fara með peninga? Hvert stefnir verðbólgan? · 28 min · Season 1 Episode 1Í þessum fyrsta þætti hlaðvarpsins svarar Björn Berg spurningu sem send var inn. 📈 Rætt er um nýja verðbólguspá og um fermingarpeninga frá árinu 1983 sem fundust inni í…
- Stikla · 1 minÍ þættinum Spurt og svarað ræðir Björn Berg um það sem þú þarft að vita um peninga. Spurningum hlustenda er svarað og rætt um hinar ýmsu hliðar fjármála. Sendu inn spurningar og…








