Skip to content
Global sound
Stjáni

Stjáni

by Ágúst Halldórsson

Latest episode
10.þáttur - Á rúntinum með Stjána.

About this podcast

Stjáni á Emmunni segir frá öllu milli himins og jarðar. Línan á að vera æviágrip í Vestmannaeyjum.
En Stjáni á það til að fara allt aðrar leiðir en hann á að fara. Bæði í sögum og skoðunum.
Ef þú ert viðkvæm manneskja fyrir gömlum karli sem er sama hvað öllum öðrum finnst.
Mælum við með að fólk stilli yfir á Bylgjuna.

Episodes

  • 10.þáttur - Á rúntinum með Stjána. · 59 minFyrsti þátturinn sem er í mynd. Stjáni spjallar um bæinn sinn og hvað er búið að gerast. Í hvaða húsi hann fæddist og allt milli himins og jarðar.
  • 9. þáttur - Þetta er vísindalega sannað! · 1 h 1 min · Season 1 Episode 9Stjáni var að drekka sinn fjórða Collab þegar þátturinn var tekinn upp. Pínu víraður en í topp formi. Farið yfir húsasmíðina á Illugagötunni þar sem Stjáni byggði sér og…
  • 8. þáttur - Sjanghæjaður Ríkharður Zóëga · 1 h 16 min · Season 1 Episode 8Fyrsti gestur í Stjána í hliðarverkefninu sem við köllum “Inn fyrir landhelgi”. Það er fyrrum bóhemlistamaðurinn Ríkharður Zóëga kokkur sem við sjanghæjuðum í spjall. Hann fer…
  • 7. þáttur - Norskir brjóstdropar við kulnun? · 52 min · Season 1 Episode 7Farið var um víðan veg. Báðir hálfslappir af flensu en látum það ekkert á okkur fá. Gott spjall þangað til við fórum í veiðileyfagjaldið. Þá náðum við púlsinum hjá Stjána heldur…
  • 6. þáttur - Villi Túlípani og baðlón kynt með líkbrennslu · 55 min · Season 1 Episode 6Stjáni fer yfir hugmyndir hvernig Vestmannaeyjar geta orðið frumkvöðlar í líkbrennslu. Hvernig gömlu skipstjórarnir vissu að staðsetningin á Landeyjahöfn var vitlaus frá upphafi…
  • 5. þáttur - Kolagrill og tvær rúllur · 50 min · Season 1 Episode 5Stjáni kemur á óvart og biður mig um að fara ekki í viðfangsefni þáttarins fyrr en í næsta þætti. Svo þessi er út um allt. Spurningar sem gleymdust og redding.
  • 4. þáttur - Ris og sala útgerðarmannsins · 57 min · Season 1 Episode 4Útgerðarsagan. Kvótakerfið. Baráttan við fiskvinnsluna. Eigin fiskvinnsla. Upphaf gámaútfluttnings og fróðleikur um lífið.
  • 3. þáttur - Sjávarháski sunnan við Surtsey · 1 h 1 min · Season 1 Episode 3Stjáni fer yfir fyrstu árin sem skipstjóri og byrjunina á útgerðinni. Hvað varð til þess að hann og pabbi hans töluðust ekki við í langan tíma og sjávarháska sem hann lenti í sem…
  • 2. þáttur - Milli landa og laga · 1 h 3 min · Season 1 Episode 2Stjáni fer yfir fyrstu sporin í sjómennskunni, siglingarnar, tónlistina og hvernig hægt er að drepa í sér sæðið í nokkra klukkutíma bara með heitu vatni.
  • 1. þáttur - Bernskuspor · 49 min · Season 1 Episode 1Stjáni fer yfir fyrsta hluta ævi sinnar. Frá fæðingarárinu 1946 að unglingsaldri. Einnig er erfitt að stoppa okkar mann þegar hann fer á flug svo það er farið um víðan völl.

Live, last hour: 6,554 songs on 2,262 stations in 118 countries

Discover the world through radio

More ways to discover (9)

Heard something good? Save it, or open it straight away in Spotify.

★ Artist of the week The fastest riser on the radio this week
Your song here? From € 9 per week →
Radio 538 luisteren - Live!Popular right now