Σημειώσεις επεισοδίου
Gestur Kristjáns Arnar er Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og stofnandi skákdeildar Breiðabliks en hann er jafnframt formaður meistaraflokksráðs deildarinnar. Halldór Grétar segir frá skákmóti sem haldið var í Golfskálanum í Bolungarvík í byrjun júlí en mótið var haldið í tilefni sextugsafmælis Halldórs fyrr á árinu. Halldór Grétar hefur um áratugaskeið lagt íslenskri skákhreyfingu lið með margvíslegum hætti. Hann hefur meðal annars setið í stjórn Skáksambands Íslands, stofnað skákdeild Breiðabliks, sinnt þjálfun og skákmannahaldi og skrifað fjölda greina um skák í gegnum tíðina…
Ιστότοπος: share.transistor.fm

