About this podcast
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.
Episodes
The newest 50 of 639 episodes
- Ítalskir bíódagar, Brothætt og Þegar Trölli stal jólunum/rýni. · 53 min · Episode 639Ítalskir bíódagar verða í Bíó Paradís 12-14. nóvember þar sem boðið eru upp á úrval ítalskra kvikmynda, gamlar perlur í bland við nýjar raddir. Ása Baldursdóttir, dagsrkárstjóri…
- Guðmundur Lúðvík hönnuður / Svipmynd · 53 min · Episode 638Í Víðsjá dagsins munum við tala um stól. Hvað gerir góðan stól, hvernig hannar maður stól og hvernig fer hann í framleiðslu? „ Stóllinn þarf að vera hæglátur og hógvær, og bara…
- Jón Kalmann og gotneska. · 50 min · Episode 637Vakir þú? nefnist ný skáldsaga úr smiðju Jóns Kalmans Stefánssonar. Þetta er verk sem gerist í samtímanum en líka við upphaf tímatals okkar. Sagan segir frá manni sem er að koma…
- Vísur Svantes, Fullkomnun og Dagar löngunar · 50 min · Episode 636Höfundurinn Svante Svendsen er sköpunarverk danska rithöfundarins Benny Andersen en nú á dögunum kom út þýðing á geysivinsælli bók og plötu um skáldið sem nefnist Vísur Svantes…
- Bedroom Community 20 ára, Elías Rúni um Fyrsta skiptið, Míkadó/rýni, 27/rýni · 55 min · Episode 635Breiðholtið er kannski ekki fyrsti staðurinn sem fólki dettur í hug þegar hugað er að suðupotti íslenskrar tónlistar, en í Seljahverfi hefur um árabil verið rekið hljóðver…
- Guðjón Ketilsson, Högni Egilsson og Straumur · 53 min · Episode 634Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, í Ásmundarsal mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar, hversdagslegir fundnir hlutir, olíukrítarteikningar…
- Dauðadæmd, Natasha S., Varkár/rýni · 55 min · Episode 633„Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir. Að elta draumana og tilfinningarnar. Láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir…
- Gerður Kristný, Páll Ragnar og Tui Hirv og Púðlusafnið · 51 min · Episode 632Hjónin Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv hafa lagt margt á vogaskálar íslensks tónlistarlífs í getnum tíðina en hafa ekki áður gert heila plötu í sameiningu. Skífan Layers, sem…
- Loftur Guðmundsson í Bíóteki, Þunnt skæni á logandi vök, Veisla þrjú/rýni · 52 min · Episode 631Þunnt skæni á logandi vök, ný kammerópera eftir þær Hildigunni Rúnarsdóttur og Magneu J. Matthíasdóttur verður flutt í Norðurljósum Hörpu á laugardag á Óperudögum. Óperan byggir…
- Aldrei las ég Laxness / Íslandsklukkan II · 54 min · Episode 630Í Víðsjá dagsins klárum við yfirferð okkar á Íslandsklukkunni í bókaklúbbnum Aldrei las ég Laxness. En í síðustu viku hófum við yfirferðina með leikkonunni og skemmtikraftinum…
- Kristín Ómarsdóttir, hinÓperan 27, Bíddu bara þetta reddast/rýni · 52 min · Episode 629„Ég fór að finna það mjög snemma eftir að ég ákvað að verða óperusöngkona að óperurnar sem er verið að flytja um allan heim á þessum stóru sviðum eru oft mjög einsleitar. Og ég…
- Hrund Atla á Mokka, persnesk mál, Atómstöðin, Högg · 58 min · Episode 628Á sýningunni Allt í klessu á Mokka, sýnir Hrund Atla 28 verk unnin með olíupastel litum á flauelispappír. Hrund hefur lengi starfað á mörkum myndlistar og kvikmyndagerðar en…
- Úkraínskir íkonar, nýjar plötuútgáfur, Undir sömu stjörnu/rýni · 54 min · Episode 627Listasafn Íslands opnaði um liðna helgi sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Þar gefur að líta fjölda íkona frá 12 og fram á 19 öld, úr safneign…
- Aldrei las ég Laxness / Íslandsklukkan I · 56 min · Episode 626Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Íslandsklukkan sem kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir…
- Karólína Rós um Lífskán, Brotnar línur/rýni, Djöflar/rýni · 52 min · Episode 625Lífskán nefnist ljóðsaga úr smiðju Karólínu Rósar Ólafsdóttur en hún fjallar um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Sjúkdómsgreind kona, kaldur…
- Brynhildur Þorgeirsdóttir, Natasha S./pistill, Fasteignamartröðin/rýni · 55 min · Episode 624„ Sko. Þegar maður er orðin 71 árs fyrirvinnulaus myndhöggvari, sem fær tæpar 39 þúsund krónur frá lífeyrissjóðnum á mánuði og á fullt að listaverkum á lager, þá þarf að grípa…
- Sally Rooney, Hugvekja um söfn og samfélag, Ókunnugt fólk/rýni · 49 min · Episode 623Ætti Þjóðminjasafnið að kaupa úlpu sem Ágústa Johnson reynir að selja á facebook? Af hverju gengur illa að varðveita torfbæi? Eru söfn í nægu samtali við samtímann? Þetta eru…
- Konur í ljósmyndun, Halldór Eldjárn og kliðharpa, Húsið hlýskeið/rýni · 53 min · Episode 622Halldóri Eldjárn er margt til lista lagt og virðist vera forvitinn um allt, en kannski sérstaklega allt sem tengist hljóði og rafmagni. Þessi tvö áhugasvið hans sameinast í…
- Jórunn Viðar og tónlist haustsins · 56 min · Episode 621Við hugum að haustlegri tónlist með tónlistarmanninum Pétri Ben og þá sérstaklega plötunni Time (The Revelator) sem bandarísku tónlistarmennirnir Gillian Welch og David Rawlings…
- Svört orkídea, Sex ed, Öld ímyndunaraflsins og Fegursta blómið · 54 min · Episode 620Fegursta blómið er breiðskífa sem tónskáldið Helgi Rafn Ingvarsson sendir frá sér á næstunni. Á plötunni vefur hann tónlist sína saman við texta eftir rómantísk, módernísk og…
- Anne Carson og Ölver · 53 min · Episode 619Kanadíska skáldið Anne Carson hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum í dag fyrir djörfung og nýjungagirni í höfundaverki sínu, en með glettnu samtali við hina klassísku hefð hafi…
- Steinunn Þórarins í Úkraínu, Fuglinn bókaforlag, Íslandsklukka, Gunnella/rýni · 54 min · Episode 618Við fáum óvenjulega ferðasögu frá Steinunni Þórarinsdóttur í þætti dagsins en hún opnaði nýverið sýningu á stríðsminjasafninu í Kænugarði. Þar sýnir hún verkið Brynjur, sem var…
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill · 53 min · Episode 617Nína okkar kærasta Nína er titill sýningar sem stendur yfir á Listasafni Reykjanesbæjar. Á sýningunni er ljósi varpað á Nínu Sæmundsson sem hinsegin listamann og eru mörg verk…
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson · 52 min · Episode 616Skúli Sverrisson byrjaði ungur að leika á rafbassa. Hann stundaði nám við tónlistarskóla FÍH en samferða námi lék hann með hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, djasspíanóleikara…
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía · 51 min · Episode 615„Soldið eins og ef Prúðuleikararnir myndu sjá um kynfræðslu,“ segir Margrét Erla Maack, sviðslistakona og ein af driffjöðrum fullorðinssirkússins Sex Ed sem frumsýndur verður í…
- Víðsjá þrítug · 51 min · Episode 614Í tilefni af 30 ára afmæli Víðsjár flökkum við vítt og breitt í tíma með hjálp tækninnar. Heyrum erindi frá Víðsjárkempum síðustu þrjátíu ára.
- Ísmús, Síðasta sumar Klingsors og Fuglamál · 54 min · Episode 613Þjóðfræðingurinn Júlíana Þóra Magnúsdóttir átti heima í nokkur ár í kjallara Árnastofnunar þar sem hún hlustaði á dýrmætar upptökur úr forneskjunni, skráetti og flokkaði…
- Netárásir, Svikasögur, Pollar · 56 min · Episode 612Netárásir hafa verið áberandi í íslenskum bókmenntaheimi undanfarnar vikur. Undanfarna daga hafa átt sér stað árásir á bókmenntavefsíðurnar Lestrarklefann, norðdahl.org og…
- Haustbækur, Bríet Bjarnhéðins, Ástin ein taugahrúga · 51 min · Episode 611Á sunnudag verður haldið verður upp á afmæli Bríetar Bjanhéðisdóttur, sem fæddist á þessum degi fyrir 170 árum. Það er félagið Leikhúslistakonur 50+ sem hafa gert dagskrá af…
- Aldrei las ég Laxness / Heimsljós II · 53 min · Episode 610Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Í síðustu viku komumst við aðeins hálfa leið með stórvirkið Heimsljós sem fjallar um ævi Ólafs…
- Pétur Ben, Sanskrít, Inga Lísa Middleton · 53 min · Episode 609Í handprentuðum bláleitum ljósmyndum teflir Inga Lísa Middleton saman stærstu og smæstu lífverum hafsins, hvölum og svifþörungum, og varpar ljósi á samspil þeirra. Sýninginí…
- Spássían, Nýtt Eldhús eftir máli, Bob Dylan · 50 min · Episode 608Spássían nefnist haustsýning Hafnarborgar 2026. Sýningin felur í sér endurmat á möguleikum sýningarrýmisins, sem er gjarnan nálgast sem hlutlaus bakgrunnur, og skilgreinir það í…
- Vaka og Varkár · 54 min · Episode 607Ein af fyrstu bókunum til að flæða inn fyrir dyr ríkisútvarpsins í komandi jólabókaflóði er skáldsagan Varkár eftir rit- og danshöfundinn Margréti Bjarnadóttur. Verkið fjallar um…
- Aldrei las ég Laxness / Heimsljós · 55 min · Episode 606Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Heimsljós sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940. Heimsljós…
- Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós · 52 min · Episode 605Víðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá…
- Open og sýningarstjórnun · 59 min · Episode 604Víðsjá kemur við á gjörningi í Open, listamannareknu rými í vesturbænum, þar sem sýningin Lesbíur frá Agoo opnaði um helgina. Pétur Eggertsson ræðir við þær Karin Itturalde…
- Robert le Diable og Breadcrumbs · 50 min · Episode 603Fyrir tæpum 200 árum var frumflutt ópera sem hafði feykileg áhrif á tónlistarsöguna en er að mestu gleymd og vanrækt á okkar dögum: Robert le Diable eftir Giacomo Meyerbeer…
- Úlfur Eldjárn 50 ára, Heimsljós og Töfrafjallið. · 52 min · Episode 602Úlfur Eldjárn tónlistarmaður og tónskáld fagnaði fimmtusgafmæli fyrir helgi. Alls ekki af því tilefni blés hann til tónleika í Fríkirkjunni síðasta sunnudag en Guðrún Sóley…
- Led Zeppelin, íslenska og gríska. · 54 min · Episode 601Led Zeppelin kom hingað til lands sumarið 1970 sem eins konar varalausn á Listahátíð eftir að annar listamaður, Donovan, reyndist of kostnaðarsamur fyrir tónleikahaldara - í…
- Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum og Fela Kuti · 54 min · Episode 600Í fyrra sendi hlaðvarparinn frægi Jad Abumrad, sem þekktur er fyrir Radiolab og Dolly Partons America, frá sér nýja hlaðvarpsseríu um tónlistarmanninn Fela Kuti og arleifð hans…
- Tinna Gunnlaugsdóttir, Eiríksþing, Davíð Þór í Heimsljósi og Gao Xingjian · 56 min · Episode 599Leikkona, fyrrum þjóðleikhússstjóri og doktor í þýingafræðum eru þrír titlar sem allir eiga við um Tinnu Gunnlaugsdóttur. Doktorsnafnbótin er nýjasta rósin í hnappagatið en hún…
- Miles Davis, Jazzhátíð og Miles Davis · 51 min · Episode 598Sigurður Flosason, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og segir frá Miles Davis. Í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu þessa trompetbákns blæs stórsveit reykjavíkur…
- Svipmynd af Magnúsi Jóhanni · 51 min · Episode 597Í þætti dagsins spjöllum við við tónlistarmanninn Magnús Jóhann Ragnarsson sem hefur getið sér gott orð í tónlistarsenu þessa lands fyrir eigin verk og sem meðleikari margra…
- Saumó og Bifreiðarstöð Oddeyrar · 51 min · Episode 596Sýningin Saumó er hluti af sýningaröðinni Heimsókn á Hönnunarsafni Íslands og er viðfangsefnið hlutverk og form saumaklúbba nú á tímum. En á sýningunni upplifa gestir sig sem…
- Bjarmaband Frosta Fjalars, Olga Tokarczuk og rannsókn á gagnkynhneigð · 55 min · Episode 595Það er ekki á hverjum degi sem nær óþekktur listamaður uppgötvast í íslensku samfélagi. Hvað þá maður sem setur mark sitt á listasöguna með einkennandi abstraktverkum sem hann…
- Hamraborg Festival, Dolly Parton og frændtungur íslenskunnar · 54 min · Episode 594Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs sem hefst á föstudag og er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið. Við bregðum okkur…
- Roman Signer á Seyðisfirði, Hljóð í ljóði og Tu Ha? Tu Bjö! · 56 min · Episode 593Þáttur dagsins er að mestu tileinkaður jazzi, enda Jazzhátíð í Reykjavík að hefjast í kvöld. Við kynnum okkur tvær jazzplötur sem koma út um þessar mundir, útgáfum sem verður…
- Brotnar línur, Heyrðu mig og The Band · 50 min · Episode 592Nú fyrir helgi kom út fyrsta ljóðabók Védísar Evu Guðmundsdóttur, Brotnar línur. Ljóðsagan segir frá ungri konu sem heldur úr borginni út á land til að vinna í sláturhúsi. Þar…
- Örn Alexander, Sjónarafl og Skriftamál einsetumannsins · 55 min · Episode 591Síðustu ár hefur á Listasafni Íslands verið unnið að metnaðarfullu fræðsluverkefni í myndlæsi undir yfirskriftinni Sjónarafl. Þar fá nemendur og áhugasamir spurningar og lykla…
- Margrét Hallgrímsdóttir í Viðey og Hist Highness · 53 min · Episode 590Í ár eru 800 ár síðan klaustrið í Viðey hóf starfsemi sína árið 1226, en klaustrið var stofnað af höfðingjum þjóðveldisaldar, Snorra Sturlusyni og Þorvaldi Gissurarsyni. Margrét…







