WOOOM HLAÐVARPIÐ
autor: WOOOM
Halldóra Geirharðsdóttir leikkona um Human Design: Að lifa í takt…
O tym podcaście
WOOOM er hlaðvarp um heilsu, næringu, sambönd, langlífi, kulnun, kynlíf og andleg málefni. Við ræðum við fólk sem deilir af einlægni reynslu sinni, þekkingu og ólíkum sjónarhornum á lífið. Í samtölunum gefum við rými fyrir bæði gleðina og erfiðleikana, það sem mótar okkur og hjálpar okkur að skilja okkur sjálf og aðra betur. Markmið okkar er að skapa jákvætt og eflandi hlaðvarp sem hjálpar fólki að lifa með meiri meðvitund, betri heilsu og sterkari tengslum við sjálft sig og aðra.
Á WOOOM.is finnur þú einnig fréttir, greinar og viðtöl á íslensku og ensku, auk viðburða og námskeiða.
Odcinki
- Halldóra Geirharðsdóttir leikkona um Human Design: Að lifa í takt við eigin orku · 53 minLeikkonan Halldóra Geirharðsdóttir segir frá því hvernig Human Design hefur hjálpað henni að skilja sjálfa sig betur, taka meðvitaðri ákvarðanir og finna sinn eigin takt í…
- Þórunn Birna Guðmundsdóttir um nálastungur og austræna læknisfræði · 1 godz. 4 minÍ þriðja þætti WOOOM hlaðvarpsins ræðum við við Þórunni Birnu Guðmundsdóttur um nálastungur, austræna læknisfræði og tengsl líkama og huga. Hún segir frá eigin reynslu, námi og…
- Elín Ellingsen og Ragnar Gunnarsson | Hugmyndin á bak við fjölmiðilinn og nýsköpunarfyrirtækið WOOOM · 20 minÍ öðrum þætti hlaðvarpsins segja stofnendurnir Elín Ellingsen og Ragnar Gunnarsson frá hugmyndinni á bak við fjölmiðilinn og nýsköpunarfyrirtækið WOOOM. WOOOM er vefur um líkama…
- Ingibjörg Stefánsdóttir | Yogashala: Að hlusta á líkamann og leyfa sér að hvíla · 48 minIngibjörg Stefánsdóttir, eigandi Yogashala, segir frá því hvernig jóga kom inn í líf hennar og lönguninni til að skapa samfélag fyrir fólk á öllum aldri. Við ræðum öndun…








