Flekaskil
by Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson
Bogi Ágústsson - Fimmtíu ár við heimsgluggan
About this podcast
Varnarsamningurinn milli Íslands og Bandaríkjanna er 75 ára um þessar mundir. Ekki gera allir sér grein fyrir að hann er nátengdur NATO og veru okkar þar. Sum ákvæði viðauka hans voru leyniskjöl frá því að hann var gerður 1951 og þar til bandaríski herinn hætti að vera með varanlegt herlið 2006. Þar á meðal ákvæði um að Bandaríkin geti stöðvað flug og tekið yfir loftl-helgi Íslands. Þau eru að umtalsverðu leyti enn í gildi.
Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.
Episodes
The newest 20 of 31 episodes
- Bogi Ágústsson - Fimmtíu ár við heimsgluggan · 1 h 7 minVið förum yfir stöðu alþjóðamálanna með Boga Ágústssyni fréttamanni sem hefur fylgst með þeim frá því hann lærði að les og sem einn helsti fréttamaður landsins í fimmtíu ár. Við…
- Flekaskil - 30. þáttur - Baldur Þórhallsson - Sigur Demókrata og ósigur Trump - hvað svo? · 1 h 14 minÚrslit bandarísku þingkosninganna voru stærri sigur Demókrata en flestir höfðu spáð. Talað er um fellibyl frekar en fylgissveiflu. Flekaskil fjalla um úrslitin, ástæðurnar fyrir…
- Flekaskil - 29. þáttur - Sigríður Rut Júlíusdóttir - Örlagaríkustu bandarísku þingkosningar lengi · 1 h 39 minFlekaskil leggja í þeysireið yfir stöðuna, lykileinvígi og afleiðingarnar sem bandarísku þingkosningarnar sem fram fara 3. nóvember geta haft. Við tölum um stórt og smátt, átökin…
- Flekaskil - 28. þáttur - Þórdís Kolbrún snýr aftur á Flekaskil - Frá Öryggisráðstefnunni í Varsjá · 44 minÍ samtali okkar fáum við beina innsýn í stöðuna á Úkraínu en Þórdís Kolbrún kom nánast beint þaðan til Varsjár. Við förum yfir hina spennuþrungnu stöðu í samskiptum Úkraínu og…
- Flekaskil - 27. þáttur - Erlingur Erlingsson - Þarf Ísland leyniþjónustu? · 1 h 13 minErlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur hefur mikla þekkingu á stöðu og þróun alþjóða- og öryggismála. Við komum víða við í tæpitungulausu spjalli: Grænlandssamningurinn…
- Flekaskil - 26. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Gaza og Vesturbakkinn · 1 h 7 minHver er staðan á Gaza og Vesturbakkanum? Hver er bakgrunnur hörmunganna sem almenningur á svæðinu býr við? Hvaða áhrif höfðu hryðjuverkin 7. október 2023? Skiptir umræðan um…
- Flekaskil - 25. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Íran · 1 h 8 minÍran-stríðið. Bakgrunnur átakanna og árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Áhrif stríðsins á stöðu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Magnús Þorkell Bernharðsson sérfræðingur um…
- Flekaskil - 24. þáttur - Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Grænland, ástarsamband ESB og Kanada og framtíð EES · 1 h 7 minFlekaskil fjalla um mála málanna á Norðurslóðum, boðaðan samning Bandaríkjannna, Danmerkur og Grænlands sem boðað hefur verið að skrfað verði undir á morgun, þriðjudag 22…
- Flekaskil 23. þáttur - Bjarni Már Magnússon - Örlagatímar í alþjóðamálum · 1 h 20 minSímtal Bjarna Ben og Trump. Viðaukinn við varnarsamninginn sem aldrei var kynntur Alþingi. Það var komið víða við í samtali Dags B. og Bjarna Más Magnússonar lögmanni og…
- Flekaskil 22. þáttur - Ingólfur Bjarni Sigfússon · 1 h 13 minÍslendingar halda að ástand heimsins komi þeim ekki við Ingólfur Bjarni fréttamaður er gestur Flekaskila þar sem komið er víða við. Um þjóðaratkvæðagreiðsluna og Evrópu, viðræður…
- Flekaskil - 21. þáttur - Pipaluk Lynge · 1 h 6 minFlekaskil – halda áfram. Heimurinn á korteri og Grænland Flekaskil halda áfram þótt Þórdís Kolbrún stigi til hliðar sem stjórnandi. Pipaluk formaður utanríkis- og öryggisnefnd…
- Flekaskil - 20. þáttur - Þáttaskil, viðskiptastríð og Evrópa · 1 h 19 minVið ræðum viðskiptastríð sem braust út milli Bandaríkjanna og Kanada, kröfur Trump sem ganga á fullveldi og spurningalista Bandaríkjanna til NATO-ríkja. Við berum orðræðuna saman…
- Flekaskil - 19. þáttur - Titringur milli Trump og bandamanna og Evrópu-umræðan · 1 h 28 minÞegar 60 daga tímamörk vopnahlés í Íran liði í morgun, virðist langt í samninga. Titringur er milli Trump og bandamanna í Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Kyrrahafi. Við ræðum…
- Flekaskil - 18. þáttur - Bandarísk olíuleit í óleyfi við Grænland - afleiðingar Íran-stríðsins og atburðirnir við Ceuta · 57 minBandarískt olíufyrirtæki gerir sig líktlegt til að hefja olíuleit í lögsögu Grænlands, án leyfa og gegn mótmælum landstjórnarinnar. Við fjöllum um kenningar og skýringar á því að…
- Flekaskil - 17. þáttur - Kettir, hattar, loftslagsmál, Gaza, bresk stjórnmál og verðugir bandamenn · 1 h 25 minÞórdís Kolbrún verður sendiherra - hvað verður um köttinn? Við fjöllum um hatta og hattakaup og hvað sendiherrastaða útheimtir. Yfirlýsingar Mandami borgarstjóra New York og Andy…
- Flekaskil - 16. þáttur - Kristrún í Rest is Politics og Þórdís Kolbrún í Skálholti · 1 h 0 minÍ sextánda þætti Flekaskila - og þeim síðasta áður en Þórdís Kolbrún verður formlega sendiherra í London tölum við um glænýtt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í…
- Flekaskil - 15. þáttur · 51 minVið rifjum upp lítt þekkta greningu Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra frá 2014 um hver áhrifin af upptök evru í stað krónu yrðu. Sú umfjöllun var í jafnvægi en niðurstaðan engu…
- Flekaskil - 14. þáttur · 1 h 5 minHeimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum…
- Flekaskil - 13. þáttur · 55 minVið förum yfir helstu fréttir af leiðtogafundi NATO í Ankara sem lauk í dag, alvarlegar yfirlýsingar Trump um Grænland sem hann ætlar sér enn að eignast. Þungi Evrópu og Kanada…
- Flekaskil - 12. þáttur · 1 h 11 minNATO á Flekaskilum! Við tökum stöðuna innan NATO fyrir í Flekaskilum - þegar vika er til sögulegs leiðtogafundar samtakanna í Ankara. Við ræðum þróun mála síðasta eitt og hálfa…







