About this podcast
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Episodes
The newest 50 of 782 episodes
- Sérstök endalok Hamborgarafabrikkunnar · 16 min · Episode 782Lokun Hamborgafabrikkunnar í Katrínartúni vakti talsverða athygli á miðvikudaginn. Skatturinn og lögreglan mættu á veitingastaðinn og innsigluðu hann. Almennt séð fara skatturinn…
- Farsímasamband ekki öryggiskerfi almennings · 19 min · Episode 781Íbúar í dreifbýli segja farsímasamband hafa versnað verulega eftir að slökkt var á 2G og 3G kerfunum í júní. Sambandsleysið hefur áhrif á öryggi fólks, atvinnurekstur og daglegt…
- Samherjagátan 2019-2025 · 19 min · Episode 780Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta Baldvins Þorsteinssonar og systur hans Kötlu Þorsteinsdóttur með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2019 til 2025…
- Bankarnir hagnast vel á meðan deilt er um bankaskatt · 15 min · Episode 779Stóru viðskiptabankarnir þrír - Íslandsbanki, Arion banki og Landsbankinn - birtu um mánaðarmótin uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Kvika banki fylgdi síðan í síðustu viku…
- Umræðan um sölu ríkiseignar í Laugarási · 11 min · Episode 778Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingum á fjárlögum…
- Það sem kom í ljós í viðskiptum Ólafs í Samskipum · 19 min · Episode 777Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í…
- Aflandsreikningar forsætisráðherrans · 18 min · Episode 776Þó mest athygli hafi farið í bókaförgun og ritskoðun í tengslum við útgáfu Thorsarabókarinnar fyrir tuttugu árum, var sjálft efni bókarinnar mun eldfimara. Upplýsingar um falið…
- Týndi kafli Thorsaranna · 16 min · Episode 775Fyrir tuttugu árum var heilu upplagi af bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um Thorsaranna, fargað og ný og breytt útgáfa prentuð. Útgefandi bókarinnar vildi ekki að fjallað…
- Ríkið leigir hjúkrunarrými fyrir níu milljarða í Urriðahvarfi · 16 min · Episode 774Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Samningurinn var gerður þann 9…
- Heimsókn utanríkisráðherra til Kína · 16 min · Episode 773Í þætti dagsins ræðum við aukin samskipti og viðskipti Kína og Íslands, og afstöðu íslenskra stjórnvalda til Taívan. Utanríkisráðherra fundaði í lok síðustu viku með Wang Yi…
- Menn með dóma fyrir glæpi sem starfa við barnavernd · 18 min · Episode 772Í Noregi og Svíþjóð hafa komið upp mál þar sem einstaklingar með tengsl við undiheimana og glæpasamtök hafa unnið hjá og jafnvel stýrt einkareknum fyrirtækjum sem sinna…
- Líður landsbyggðin fyrir fækkun lögregluembætta? · 16 min · Episode 771Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem…
- Tíðindamikil byrjun nýja meirihlutans i Reykjavík · 17 min · Episode 770Nýi meirihlutinn í borgarstjórn hefur hafið störf af miklum krafti síðustu mánuði. Uppsagnir á fjölda starfsfólks, niðurskurður á þjónustu á Borgarbókasafninu, fyrirhuguð…
- Tíðindaleysi á þingi · 15 min · Episode 769Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.
- Sjö ára baráttu lauk í Hæstarétti · 17 min · Episode 768Um miðjan mánuðinn féll dómur Hæstarétti Íslands í máli sem Elva Björk Haraldsdóttir höfðaði Gegn tryggingafélaginu Verði. Málið getur haft fordæmisgildi fyrir námsmenn og…
- Tekjur rithöfunda rýrna · 18 min · Episode 767Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sína en skila ekki tekjum í…
- Rifrildið um jarðir og laxveiðiár Jim Ratcliffes · 21 min · Episode 766Í byrjun vikunnar kom upp umræðu um enska fjárfestinn Jim Ratcliffe og umsvif hans á Íslandi sem landeiganda og leigutaka laxveiðiáa. Þetta var eftir að lögfræðingurinn og…
- Gagnrýni á viðvaranakerfi Veðurstofunnar · 17 min · Episode 765Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausamunum í bænum. Í kjölfar…
- Sveitarstjórinn á Laugum í viðskiptum við skreiðarfyrirtæki · 19 min · Episode 764Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit, Katrín Sigurjónsdóttir, er eigandi fyrirtækis sem selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir skreiðarþurrkun útgerðarfyrirtækisins á…
- Mótmæli og óeirðir í Frakklandi · 18 min · Episode 763Í þætti dagsins förum við til Frakklands þar sem ekkert lát er á mótmælum og óeirðum. Rætt er við Torfa Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, og Kristínu Jónsdóttur, sem er…
- Rígurinn á milli kók og pepsí í ljósi rannsóknar Samkeppniseftirlitsins · 18 min · Episode 762Hvort er betra, kók eða pepsí? Þetta er ein af þessum spurningum sem sjálfsagt margir hafa skoðun á. Rígurinn á milli þessara sykruðu gossrykkja er langvinnur og sögulegur, bæði…
- Samkeppnin á tímum lífeyrissjóðanna · 16 min · Episode 761Einstaka lífeyrissjóðir eru eigendur í fyrirtækjum sem á sama tíma eiga að vera keppinautar á markaði. Undir er matvara, bensín, bankastarfsemi og fjarskiptaþjónusta, svo fátt…
- Ölgerðin í ÁTVR: „Ríkið í Ríkinu“ · 19 min · Episode 760Ölgerðin hefur verið til umfjöllunar í fréttum síðustu daga út af húsleit Samkeppniseftirlitsins hjá fyrirtækinu út af meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu…
- Sjálfkeyrandi bílar ryðja sér til rúms · 19 min · Episode 759Í dag beinum við sjónum okkar að sjálfkeyrandi bílum. Rætt er við Rósu Guðbjartsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, Björn Kristjánsson, bílasérfræðing og ráðgjafa hjá FÍB, og…
- Tímakaup Wolt-sendla · 16 min · Episode 758Þegar talað er um tímakaup Wolt-sendla á Íslandi er ekki verið að tala um tímakaup í sömu merkingu og flestir leggja í þetta orð. Tímakaup Wolt-sendla er tengt því hversu margar…
- Glæpur og refsing í Manchester City · 20 min · Episode 757Stærð og umfang hneyklisins í kringum fótboltaliðið Manchester City stækkar dag frá degi með nýjum fréttum af málinu. Ólíkar hugmyndir hafa til dæmis komið fram á opinberum…
- Manchester City-hneykslið snýst um miklu meira en fótbolta · 20 min · Episode 756Hneykslið í kringum enska fótboltaliðið Manchester City hefur verið nær stöðugt í fjölmiðlum víða um heim síðastliðna viku. Stærð þessa skandals hefur magnast upp frá því að…
- Nýtt vígbúnaðarkapphlaup þegar afvopnunar er minnst · 16 min · Episode 755Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem skref voru stigin í átt að afvopnun. Þessara tímamóta er nú víða minnst – á sama tíma og útgjöld til varnar- og…
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu · 15 min · Episode 754Í þætti dagsins fjöllum við um aðgengi almennings að íslenska dómskerfinu, sér í lagi hjá héraðsdómum á landsbyggðinni. Fréttastofa RÚV og aðrir fjölmiðlar hafa ítrekað orðið að…
- Baráttan um Brasilíu · 16 min · Episode 753Við förum til Brasilíu í þætti dagsins þar sem forsetakosningar fóru fram í gær. Hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forsetans Jair…
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur · 17 min · Episode 752Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar er rætt við Guðmund Ármann Pétursson, formann…
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur · 16 min · Episode 751Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar segir Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur…
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum · 19 min · Episode 750Dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað tugum milljóna á ástarsvikum. Þetta eru svik sem oft eru kennd við Nígeríusvindl. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn og…
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk · 16 min · Episode 749Við förum til Hafnarfjarðar í þætti dagsins þar sem bærinn hefur hafið samstarf við Stólpa um uppbyggingu á nýju tímabundnu hverfi - fyrir erlent starfsfólk sem kemur hingað til…
- Fordæmisgildi tveggja hæstaréttardóma fyrir bókun 35 · 15 min · Episode 748Prófessor í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík, Gunnar Þór Pétursson, segir að hæstaréttardómur sem féll í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur taugalæknis sendi skilaboð til Alþingis…
- Konan á bak við sögulegt dómsmál í Hæstarétti · 17 min · Episode 747Anna Bryndís Einarsdóttir taugalækni voru í vikunni dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu í Hæstarétti Íslands vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði…
- Skreiðarþurrkunin á Laugum og Nígeríuviðskipti Íslands · 18 min · Episode 746Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði lokað tímabundið. Þetta var í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar…
- Heimir Hallgrímsson í miðju stormsins · 15 min · Episode 745Í þætti dagsins eru sjónum beint að deilum um leiki Írlands og Ísraels. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, stendur í miðju stormsins. Rætt er við Jóhann Pál Ástvaldsson…
- Wolt-væðingin á Íslandi · 20 min · Episode 744Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin…
- Ástæður og áhrif verkfalls flugvirkja · 14 min · Episode 743Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um…
- Rannsóknin á lögreglustjóranum eftir þorrablótið · 15 min · Episode 742Þorrablót Flateyringa komst í fréttir síðasta vetur. Vikuna eftir það fluttu fjölmiðlar fréttir af því að kvartað hefði verið undan hegðun Helga Jenssonar, lögreglustjóra á…
- Microsoft verði eini kúnni gagnaversins á Bakka · 15 min · Episode 741Bandaríska stórfyrirtækið Microsoft er fyrirhugaður viðskiptavinur gagnaversins á Bakka við Húsavík sem mögulega mun rísa þar. Verkefnið var kynnt á fundi á Húsavík á…
- Ótengdir og óvirkir lífeyrissjóðir · 18 min · Episode 740Hvenær er maður hæfur til að eiga banka? Hvernig geta menn verið ótengdir eigum sínum og jafnvel sér sjálfum á Íslandi? Hvers vegna virðast svokallaðar hlutfallstölur, það er að…
- Herör gegn hraðtísku · 17 min · Episode 739Í dag beinum við sjónum okkar að hraðtísku - og þeirri ákvörðun franskra stjórnvalda að setja sérstakt gjald á hverja flík sem tengist hluta þess iðnaðar. Rætt er við Jóhann Pál…
- Roma-fólk í sögu Íslands · 16 min · Episode 738Fyrstu skjalfestu heimildirnar um komu Roma-fólks til Íslands eru frá því í byrjun tuttugustu aldarinnar. Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur hefur stundað rannsóknir á sögu…
- Svikin í Alicante · 15 min · Episode 737Íslenskir ferðamenn hafa stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa verið sviknir í viðskiptum með leiguhúsnæði í Alicante á Spáni. Fyrirtækið sem um ræðir heitir Sammlind…
- Umdeildu hafmeyjarbrotin sem enduðu sem stofustáss · 15 min · Episode 736Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft…
- MAST fjarlægir búfé af sveitabæ í Eyjafirði í þriðja sinn · 15 min · Episode 735Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um að ræða kindur, hross og hrúta segir…
- Fyrsta skrefið í að draga úr vægi verðtryggingar · 14 min · Episode 734Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Rætt…
- Fjárfestar deila um hlutabréfaviðskipti í Sýn · 15 min · Episode 733Félag Reynis Grétarssonar, Gavia Invers, stærsta hluthafi Sýnar hefur stefnt eiganda félagsins Ursus hf, Heiðar Guðjónssyni. Heiðar Guðjónsson er fyrrverandi forstjóri Sýnar og…







