Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
de heilsuhladvarp
Máttur kjötsoðsins – Getur það hjálpað við bólgum og…
Sobre este podcast
Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?
Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.
Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?
Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.
Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.
Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!
Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!
Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is
Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is
Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is
Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is
Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is
Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is
Episódios
Os 50 episódios mais recentes de 112
- Máttur kjötsoðsins – Getur það hjálpað við bólgum og meltingarsjúkdómum? | Melting | Histamín | Omega-3 | Innmatur | Salt | Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir · 1 h 33 min · Episódio 112🍲 Getur gamla og góða kjötsoðið verið lykill að betri meltingu og minni bólgum? Í þessum fróðlega þætti fáum við aftur til okkar Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni, eða Kollu, eins…
- Tónheilun og tíðni - Getur verið að hljóð hafi meiri áhrif á okkur en við gerum okkur grein fyrir? – Vala Sólrún Gestsdóttir · 1 h 20 min · Episódio 111🎙️ Geta hljóð, tíðni og titringur haft meiri áhrif á líkamlega og andlega heilsu okkar en við gerum okkur grein fyrir? Í þessum þætti fáum við til okkar Völu Sólrúnu Gestsdóttur…
- Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira · 1 h 58 min · Episódio 110Auður Elísabet starfaði lengi sem hjúkrunarfræðingur, meðal annars á Kvennadeild Landspítalans þar sem hún vann með fólki í erfiðum og djúpum aðstæðum frá vöggu til grafar…
- Áhrif þunglyndislyfja á fósturþroska - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki · 1 h 9 min · Episódio 109Ný íslensk rannsókn, sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, sýnir að nýburar mæðra sem taka SSRI- eða SNRI-þunglyndislyf á meðgöngu eru meira en tvöfalt líklegri til að…
- Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum · 2 h 22 min · Episódio 108❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is🛒…
- Höfum við einblínt um of á hitaeiningar? Hvað gerist í raun inni í líkamanum? | Insúlín, hvatberar og fitubrennsla | Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir · 1 h 33 min · Episódio 107❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is🛒…
- Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein · 2 h 22 min · Episódio 106🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf?🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi?🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur…
- Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun · 1 h 11 min · Episódio 105💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum…
- Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir · 1 h 24 min · Episódio 104✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur…
- Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis · 1 h 25 min · Episódio 103Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur…
- Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson · 1 h 8 min · Episódio 102🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við…
- Gekk aftur á bak til betri heilsu | Hörður Torfason | Að eldast án þess að verða gamall, dagleg heilsuráð og lífið sjálft · 1 h 16 min · Episódio 101🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar…
- Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir · 1 h 48 min · Episódio 100🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu? Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“…
- Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga · 2 h 5 min · Episódio 99🎙️ Hvað gerist þegar dóttir þín greinist með einn flóknasta og sjaldgæfasta taugasjúkdóm heims – og framtíðin er allt í einu full af óvissu? Í þessum þætti ræðum við við Sigurð…
- Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum · 1 h 32 min · Episódio 98👂 Heyrnin – eitt mikilvægasta skynfærið sem við megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut Í þessum þætti ræðum við við Evu Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalækni með sérhæfingu í…
- Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu · 1 h 12 min · Episódio 97👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan? Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra…
- Mögnuð saga 13 ára drengs sem lamaðist skyndilega og var sagt að hann gæti aldrei gengið aftur | Magnús Helgason & Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir · 1 h 21 min · Episódio 96Lífið breytist á einu augabragði. En von og þrotlaus vinna flytur fjöll! ✨ Sumarið 2023 breyttist líf hins 13 ára íþróttastráks Magnúsar Mána á einni nóttu þegar hann lamaðist…
- Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' Sigurðardóttir · 1 h 28 min · Episódio 95Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Í þessum þætti ræðum við við Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Svanhildi…
- Er golf bara dýr og tímafrek yfirstéttaríþrótt eða leynist þar lykillinn að bættri lýðheilsu, minni einmanaleika og hraustari og hamingjusamari þjóð? | Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands · 1 h 27 min · Episódio 94Í þessum bráðskemmtilega og kraftmikla þætti af heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu mæta þær Huldu Bjarnadóttur, fyrsta kvenkyns forseta Golfsambands Íslands. Hulda, sem er þekkt…
- Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og IFS meðferðaraðili – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar - hluti 1 · 2 h 20 min · Episódio 93Pendúll taugakerfisins – innra öryggi, IFS og krabbameinsvegferðin Í þessum þætti ræðum við við Auði Elísabetu Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðing og IFS meðferðaraðila um…
- Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum. · 1 h 50 min · Episódio 92🎙️ Heilsuhlaðvarpið – Hinn hljóði faraldur sýklalyfjaónæmis? Í dag ræðum við eitt stærsta en jafnframt vanmetnasta heilbrigðismál samtímans – baráttuna við bakteríur sem hætta…
- Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri. · 1 h 53 min · Episódio 91Pálmi V. Jónsson, öldrunarlækni og prófessor, hefur í áratugi verið leiðandi rödd í málefnum eldra fólks á Íslandi. Í þessum fróðlega þætti af Heilsuhlaðvarpinu brýtur Pálmi upp…
- Er sólin hættuleg? | Áhrif sólarinnar á líkamsstarfsemina | Áhrif blárrar birtu | Glóperur vs. LED-perur | Mikilvægi birtuumhverfisins heima | Aron Skúlason verkfræðingur · 1 h 32 min · Episódio 90Í þessum þætti ræðum við við Aron Skúlason, verkfræðing og áhugamann um heilsu, sem heldur úti heilsusíðunni Frá toppi til táar ásamt konunni sinni Hildi Leonardsdóttur. Aron…
- Kjartan Örn Sigurðsson. Hvernig tengist vinnustaðamenning bæði auknum hagnaði fyrirtækja og bættri heilsu og lífsgæðum starfsfólks? · 1 h 37 min · Episódio 89Í þessu hlaðvarpsviðtali ræðir Kjartan Örn Sigurðsson við þær Lukku og Jóhönnu um mikilvægi vinnustaðamenningar og tengsl hennar við heilsu og vellíðan. Kjartan leggur áherslu á…
- Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ · 1 h 19 min · Episódio 88🎙️ Eiturefnin í okkur – „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Í þessum þætti höldum við áfram umræðunni um eiturefnin í kringum okkur – efnakokteilinn sem…
- Kristín Ólafsdóttir lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði við HÍ um eiturefnakokteilinn í daglega lífinu - ósýnilegu efnin í umhverfinu og í okkur. · 1 h 23 min · Episódio 87🧪 Eiturefnakokteillinn í daglega lífinu – ósýnilegu efnin í líkamanum okkar Í þessum þætti eigum við samtal við Kristínu Ólafsdóttur, lífefnafræðing og dósent í eiturefnafræði…
- Hildur Kristin Sveinsdóttir sjúkraþjálfari og eigandi Sjúkrasport um heildræna nálgun, forvarnir, íþróttir og afrek, seiglu og mörkin á milli heilbrigðrar hreyfingar og öfga · 1 h 5 min · Episódio 86Í þættinum er rætt við Hildi Kristínu Sveinsdóttur, sjúkraþjálfara, íþróttakennara og íþróttafræðing. Hildur er fædd og uppalin á Hvolsvelli þar sem hún lærði snemma til…
- Ingvar Sigurðsson býflugnabóndi um undraheim hunangsbýflugna og afurðir þeirra · 58 min · Episódio 85🐝 Hvað vitum við í raun um hunangsbýflugur? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms fáum við í heimsókn Ingvar Sigurðsson býflugnabónda og köfum inn í einstakan…
- Magni Grétarsson, sjúkraþjálfari um fasíuna og áhrif hennar á líkamsstöðu og heilsuna. Óvæntar tengingar við tunguna, hvernig við öndum, útlit og fleira. · 1 h 5 min · Episódio 84Í þessum þætti ræðum við við Magna Grétarsson sjúkraþjálfara um eitt af áhugaverðustu kerfum líkamans: bandvefinn — eða fasíuna. Bandvefurinn er oft kallaður “netið” sem tengir…
- Valgeir Magnússon og heilsan í Excel. Frá því að mælast eldri — í að yngja líkamann um 20 ár. · 1 h 9 min · Episódio 83🎙️ Mældist eldri en hann var — og sneri þróuninni við | Valgeir Magnússon, Valli Sport Í þessum þætti fáum við til okkar Valgeir Magnússon, frumkvöðul, auglýsinga- og…
- Fida Abu Libdeh um kísil "hið gleymda næringarefni" og söguna af því hvernig unglingaveik stúlka frá Palestínu yfirsteig hindranir og varð stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica 🌋 · 58 min · Episódio 82Fida Abu Libdeh lýsir því hvernig hún flutti sextán ára gömul frá Palestínu til Íslands og yfirsteig verulegar hindranir í skólakerfinu, þar á meðal tungumálaörðugleika og…
- Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣 Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór · 1 h 25 min · Episódio 81Í þessum þætti fáum við til okkar Kristinn Johnson, framkvæmdastjóra Eirbergs, í einstaklega fróðlegt, lifandi og skemmtilegt samtal um heilsu, forvarnir, tækni og tæki sem geta…
- Beta Reynisdóttir næringarfræðingur um persónulega reynslu af alvarlegum veikindum, leiðina til bata, nýja 7 daga blóðsykursnámskeiðið og tengsl sorgar og áfalla við næringu · 2 h 50 min · Episódio 80Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur og næringarþerapisti, deilir með hlustendum persónulegri sögu sinni af alvarlegum veikindum og hvernig hún nýtti næringu og andlega rækt…
- Heiti potturinn með Sigurði Erni Hilmarssyni, mannréttindalögfræðingi og þingmanni um auknar valdheimildir heilbrigðisráðherra í tengslum við farsóttir. · 2 h 50 min · Episódio 79Heiti potturinn fjallar um nýsamþykkt sóttvarnarlög og þær víðtæku valdheimildir sem heilbrigðisráðherra eru færðar í tengslum við farsóttir. Gestur þáttarins er Sigurður Örn…
- Rick Doblin um notkun MDMA við áfallastreituröskun, rannsóknir á hugvíkkandi meðferðum og ávinning meðferðanna. · 2 h 50 min · Episódio 78Í þessu hlaðvarpi fjalla stjórnendurnir Lukka og Jóhanna um endurreisn hugvíkkandi efna í læknisfræðilegum tilgangi og kynna viðtal við frumkvöðulinn Rick Doblin. Hann er…
- Brynhildur Ólafsdóttir um Útihreyfinguna, ævintýrin, nauðsyn náttúrunnar, nærandi félagsskap, árstíðasport og sundhlaup. · 1 h 55 min · Episódio 77Hér er á ferðinni skemmtilegt viðtal við Brynhildi Ólafsdóttur, stofnanda Útihreyfingarinnar, þar sem rætt er um mikilvægi þess að rækta líkama og sál í íslenskri náttúru…
- Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði um félagstöfra sem liggja til grundvallar samfélögum, vellíðan, velsæld og heilsu í víðustu merkingu - erum við að tapa þeim? · 1 h 14 min · Episódio 76🎙️ Í þessum þætti ræðum við við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði, um það sem skiptir kannski meira máli en margt annað í lífinu: félagsleg tengslin okkar — og hvernig…
- Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastj. Skógrækarfélags Reykjavíkur um mikilvægi aðgangs að náttúrunni og tengsl við heilsu, mögulega lokun stórs hluta Heiðmerkur, vatnsvernd og geislun vatns · 1 h 13 min · Episódio 75Í þessum þætti ræðum við við Auði Kjartansdóttur, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur, landfræðing, snjóflóðasérfræðings, afreks- og útivistarkonu, um einstakt gildi…
- Heilsan í eigin höndum: Samtal við Erlu Guðmundsdóttur um lífið, heilbrigði, samfélagið, ungbarnasund, heilsumarkþjálfun, íþróttakennslu og margt margt fleira gott · 1 h 24 min · Episódio 74Hér er rætt við Erlu Guðmundsdóttur, einnig þekkt sem Heilsuerla, sem er íþróttafræðingur, fjölhæfur heilsufrumkvöðull og stjórnandi hlaðvarpsins "með lífið í lúkunum" Heilsa er…
- Janus Guðlaugsson um styrktarþjálfun, mikilvægi vöðvavefs, bætingar á efri árum og mikilvægi heilsueflingar og stuðnings. · 1 h 31 min · Episódio 73✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu…
- Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir um ljós og myrkur, birtuvillu, mikilvægi sólarinnar og hvernig við eigum frekar að nota sólgleraugun á kvöldin ☀️☀️😎 · 1 h 57 min · Episódio 72✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu…
- Sigga Kling um um lífið, örlögin og ábyrgðina á eigin vegferð, stjörnurnar, vitundina og það að þora að vera maður sjálfur ☀️✨💫 · 2 h 31 min · Episódio 71✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu…
- Andri Snær Magnason um húsin sem rísa, draumana sem víkja í menningu málamiðlana og gjöfina sem við gætum fært hvert öðru 💞 · 2 h 9 min · Episódio 70Í þessum þætti fáum við til okkar Andra Snæ Magnason – rithöfund, hugsuð og einn skarpasta samfélagsrýnanda landsins. Nýjasta bókin hans Jötunnsteinn er stutt en hárbeitt saga…
- Dr.Sigrún Þóra Sveinsdóttir sálfræðingur um hjartsláttarbreytileika (HRV) og áhrif hans á andlega seiglu, hugræna frammistöðu, viðbragðsflýti, vinnuþreytu og jákvæðar tilfinningar. · 1 h 27 min · Episódio 69Í þessum þætti fáum við til okkar Dr. Sigrúnu Þóru Sveinsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í lífeðlisfræðilegri sálfræði, og förum djúpt í HRV (Heart Rate Variability) – eitt…
- Hugi Ingibjartsson um að greinast með 3ja stigs óskurðtækt krabbamein – og hugrekkið að fara eigin leið að hluta · 50 min · Episódio 68Í þessum þætti ræðum við við Huga Ingibjartsson, sem greindist með 3ja stigs tungurótarkrabbamein sem reyndist ekki skurðtækt. Hugi lýsir því hvernig það er að standa frammi…
- Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur sjúkraþjálfarar um langvinna verki og hvernig við náum stjórn á þeim · 1 h 46 min · Episódio 67Í þessum þætti fáum við til okkar systurnar og sjúkraþjálfarana Heru Rut og Thelmu Rut Hólmarsdætur, sem starfa á Reykjalundi. Þær hafa sérhæft sig í aðstoð við fólk sem glímir…
- Þórunn Birna Guðmundsdóttir doktor í Austurlenskum lækningum um fræðin, nálastungur, næringu, árstíðir og heildrænan lækningar · 1 h 6 min · Episódio 66Í þessum þætti fáum við til okkar Dr. Þórunni Birnu Guðmundsdóttur, sérfræðing í nálastungum og austrænni læknisfræði, og ræðum hvernig austræn nálgun er ólík vestrænni – og hvar…
- Sölvi Tryggvason um stóru myndina, heilbrigði, lífsgæði, tog samfélagsins í átt að óhollustu, áföll, úrvinnslu og persónulegan vöxt · 1 h 52 min · Episódio 65Í þessum þætti er rætt við Sölva Tryggvason um stóru myndina þegar kemur að heilsu og ábyrgð. Hvernig samfélagið ýtir stöðugt að okkur óhollustu og hvernig við erum orðin…
- Heiti potturinn með Aroni Skúlasyni verkfræðingi og Magnúsi Stefánssyni flugstjóra · 57 min · Episódio 64Í Heita pottinum setjumst við í pottinn með Aroni Skúlasyni, verkfræðingi sem heldur úti Instagram-reikningnum Frá toppi til táar ásamt konunni sinni Hildi Leonardsdóttur. Með…
- Elín Jónsdóttir, verkefnastjóri heilsu og vellíðunar hjá Nettó um sína heilsuvegferð, stofnun 101 Granda, Costa Rica og hið stóra verkefni að gera heilsudeild Nettó að bestu heilsudeild landsins. · 2 h 13 min · Episódio 63Í þessum þætti setjumst við niður með Elínu Jónsdóttur, verkefnastjóra heilsu og vellíðunar hjá Nettó, og förum bæði í persónulega sögu hennar og stóra myndina: hvernig er að…








