Skip to content
Global sound
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Sterk staða Meloni á Ítalíu

· 22 min · Episode 125

Show notes

Óstöðugleiki var einkenni ítalskra stjórnmála áratugum saman eftir síðari heimsstyrjöldina. Ríkisstjórnir komu og fóru ótt og títt. Það ber því nýrra við að sami forsætisráðherrann sitji í fjögur ár eins og raunin er með Georgiu Meloni. Hún varð fyrsta konan til að leiða ríkisstjórn þegar hún tók við 2022 og er óskoraður leiðtogi hægriafla á Ítalíu.

Aðalheiður Ámundadóttir, blaðamaður á Gímaldinu, sem býr á Ítalíu, var gestur Heimsgluggans. Þau Bogi Ágústsson ræddu ítölsk stjórnmál, efnahagslíf og horfur, mun á Suður- og Norður-Ítalíu, afstöðu ítalskra stjórnmálamanna til Evrópu og stríðsins í Úkraínu og mörg önnur mál.

Website: ruv-radio.akamaized.net

Live, last hour: 8,061 songs on 3,503 stations in 119 countries

Discover the world through radio

More ways to discover (7)

Heard something good? Save it, or open it straight away in Spotify.

★ Artist of the week The fastest riser on the radio this week
Your song here? From € 9 per week →
TRANCE · EDM · AH.FMContinue listening