About this podcast
Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.
Episodes
The newest 50 of 125 episodes
- Sterk staða Meloni á Ítalíu · 22 min · Episode 125Óstöðugleiki var einkenni ítalskra stjórnmála áratugum saman eftir síðari heimsstyrjöldina. Ríkisstjórnir komu og fóru ótt og títt. Það ber því nýrra við að sami…
- Friður ekki fyrirsjáanlegur í Úkraínu · 22 min · Episode 124Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um nokkuð af því sem er efst á baugi í erlendum fréttum, stríð Rússlands við…
- Demókratar vinna stórsigur í kosningum í Bandaríkjunum · 42 min · Episode 123Silja Bára Ómarsdóttir, háskólarektor og prófessor í alþjóðastjórnmálum, og Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddu úrslit kosninganna í Bandaríkjunum við Boga Ágústsson í…
- Kosningar í fjórum ríkjum · 24 min · Episode 122Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau einnig horfurnar fyrir…
- Mikil seigla í hagkerfi heimsins · 23 min · Episode 121Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu efnahagsmála heimsins. Gylfi…
- Allt í hnút á Norður-Írlandi · 23 min · Episode 120Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um göngu Óraníu-reglu…
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús · 24 min · Episode 119Eftir áralanga ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland og hótanir um að hertaka landið og innlima hefur verið undirritaður samningur á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um…
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð · 24 min · Episode 118Það var ýmislegt á dagskrá Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag. Fyrstu ráðherrar Norður-Írlands, Skotlands og Wales, sem öll hafa sjálfstæði á dagskránni, hittust í…
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta · 22 min · Episode 117Í Heimsglugga vikunnar var rætt um refsiaðgerðir tólf vestrænna ríkja vegna fyrirætlana um enn auknar byggðir Ísraelsmanna á herteknu palestínsku landi. Þá var rætt um feðgana…
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál · 23 min · Episode 116Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu árásir Rússa í Leipzig og fleiri…
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“ · 32 min · Episode 115Baldur Þórhallsson prófessor og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræddu breytt öryggisumhverfi frá sjónarhóli smáríkja í Heimsglugganum. Baldur líkir…
- Hótanir Bandaríkjaforseta og kosningabarátta í Svíþjóð · 22 min · Episode 114Bandaríkjaforseti hefur í þessari viku hótað að gera árásir á bandamenn í Óman, fyrirskipað að dregið skuli úr hlut Bandaríkjanna í heræfingum í Suður-Kóreu og kallað einhvern…
- Farage tekst á við ruslatunnu · 23 min · Episode 113Aukakosningar eru í Clacton-kjördæminu á Englandi í dag þar sem kosið er til breska þingsins. Efnt var til kosninganna þar sem Nigel Farage leiðtogi Reform, Umbótaflokksins…
- „Slær frá sér eins og blindur risi“ – Árásir Rússa á Úkraínu og bresk stjórnmál · 23 min · Episode 112„Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Björn Þór…
- „Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“ · 23 min · Episode 111Bandarísk stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðu og horfur vestra. Sigríður Rut…
- „Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“ · 23 min · Episode 110Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þeir ræddu meðal annars nýlokinn leiðtogafund G7-ríkjanna í Evian…
- „Ég elska verðbólgu…“ · 23 min · Episode 109Donald Trump er í klípu, hvorki gengur né rekur í tilraunum hans til að gera varanlegt vopnahlé eða friðarsamning við Írana. Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa…
- Reiði vegna morðs í Bretlandi og ný stjórn í Danmörku · 21 min · Episode 108Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handtekinn. Lögreglan trúði yfirlýsingum…
- Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin · 23 min · Episode 107Í Heimsglugganum heyrðum við í Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann var…
- Norræn öryggismál og fleira · 24 min · Episode 106Norræn öryggismál voru í brennidepli í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 og rætt um norrænan sjónvarpsþátt um varnar- og öryggismál. Þátturinn var á dagskrá allra…
- Stefnir í afhroð gömlu flokkanna á Englandi · 24 min · Episode 105Kosið er í Bretlandi í dag, þingkosningar í Skotlandi og Wales og sveitarstjórnarkosningar víða í Englandi. Þar er Reform, Umbótaflokki Nigels Farage, spáð mikilli…
- Grænland, Trump og Leó páfi og minningarhátíð gyðinga · 22 min · Episode 104Nýjar stjórnir hafa tekið við í Færeyjum og á Grænlandi. Múte B. Egede tók við af Vivian Motzfeldt sem utanríkisráðherra og tekst á við ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í yfirráð…
- Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi · 24 min · Episode 103Viktor Orbán hefur stjórnað Ungverjalandi í 16 ár en nú benda kannanir til þess að Fidesz-flokkur hans tapi þingkosningum á sunnudag. Gunnsteinn Ólafsson, hljómsveitarstjóri sem…
- Flókin staða eftir kosningar í Danmörku · 25 min · Episode 102Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með þingkosningunum í Danmörku á þriðjudag og Bogi Ágústsson ræddi við hann í Heimsglugganum um stöðuna í dönskum stjórnmálum. Fyrst…
- Lýðræði í Bandaríkjunum hefur „sokkið eins og steinn“ · 22 min · Episode 101Lýðræði í heiminum er á undanhaldi og í Bandaríkjunum hefur það „sokkið eins og steinn,“ segir í skýrslu V-dem-stofnunarinnar við háskólann í Gautaborg. Tveir þungavigtarmenn í…
- Óljós stríðsmarkmið Bandaríkjamanna · 24 min · Episode 100Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu ýmsar hliðar og afleiðingar árása Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran. Hráolía hefur hækkað mikið í verði og óttast er að það…
- Útlit fyrir stjórnarskipti í Færeyjum og ósamræmi í málflutningi bandarískra ráðamanna um árásirnar á Íran · 23 min · Episode 99Hjálmar Waag Árnason var gestur Heimsgluggans og ræddi stjórnmál í Færeyjum en frændur okkar og frænkur ganga til kosninga síðar í mars. Hjálmar á ættir að rekja til Færeyja og…
- „...aldrei hefur forseti logið jafn mikið…“ · 23 min · Episode 98Danska blaðið Politiken sagði í leiðara að aldrei hefði forseti logið jafn mikið og gert jafn mikið til að sundra landi sínu. Þarna var Politiken að fjalla um State of the…
- Millibilsástand í fjármálum heimsins · 23 min · Episode 97Ásgeir Brynjar Torfason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar, verðsveiflur á gulli, silfri og bitcoin…
- Erna Solberg hættir eftir 22 ár sem formaður Høyre · 24 min · Episode 96Heimsglugginn var að mestu norrænn að þessu sinni. Erna Solberg lætur af formennsku í Høyre, norska íhaldsflokknum. Eftirmaður hennar er Ine Eriksen Søreide, sem hefur verið bæði…
- Margt áhrifafólks í vandræðum vegna Epstein-skjalanna. · 25 min · Episode 95Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um Epstein-skjölin og afleiðingar birtingar upplýsinga sem fram koma í þeim. Peter Mandelson hrakist…
- Krísa gömlu flokkanna í Bretlandi · 24 min · Episode 94Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi fréttaritari RÚV í Lundúnum, var gestur Heimsgluggans og ræddi við Boga Ágústsson um bresk stjórnmál. Hefðbundnu…
- Úkraína og mögulegt samkomulag um Grænland · 23 min · Episode 93Friðrik Jónsson, sendiherra í Póllandi og Úkraínu, var gestur Heimsgluggans og ræddi stöðuna í Úkraínu. Hann segir viðstöðulausar árásir Rússa á borgaralega innviði í Úkraínu…
- Blaðamenn drepnir, Gaza og Grænland · 24 min · Episode 92Samtökin Blaðamenn án landamæra (Reporters sans frontières) segja að 67 blaðamenn, hið minnsta, hafi verið drepnir á síðasta ári, Flestir þeirra féllu á Gaza fyrir hendi…
- Skrítin ásælni Trumps í Grænland · 23 min · Episode 91Margir furða sig á röksemdafærslu bandarískra ráðamanna er þeir krefjast yfirráða á Grænlandi; varnarsamningur Danmerkur og Bandaríkjanna leyfi Bandaríkjamönnum nánast allt sem…
- Hlutabréfaverð vestra tvöfalt hærra en ætti að vera · 24 min · Episode 90Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptadeild Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu og horfur í efnahagsmálum…
- Úkraína og vandræði norskra og danskra krata · 24 min · Episode 89Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugga vikunnar um stöðuna í friðarviðræðum í Úkraínu. Rússar hafa ekki hvikað frá ítrustu…
- Íslendingar eiga allt undir því að alþjóðlegar reglur séu virtar · 23 min · Episode 88Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sækir Ísland heim í dag og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs – samtaka um vestræna samvinnu, var gestur Heimsgluggans…
- Trump snýr við blaðinu og stórtap Jafnaðarmanna í Danmörku · 24 min · Episode 87Aðalefni Heimsglugga vikunnar voru dönsk stjórnmál og úrslit sveitarstjórnakosninga þar sem Jafnaðarmenn misstu embætti borgarstjóra Kaupmannahafnar eftir að hafa farið með…
- BBC í ólgusjó og kristalnætur minnst · 23 min · Episode 86Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um vandræði breska ríkisútvarpsins vegna mistaka í fréttaskýringaþættinum Panorama…
- Kosningasvindl og ólga í Tansaníu · 24 min · Episode 85Fjallað var um Tansaníu í Heimsglugga vikunnar og einnig kosningarnar í Bandaríkjunum sem voru í fyrradag. Jón Geir Pétursson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ…
- Trump hundsar þrískiptingu ríkisvaldsins · 24 min · Episode 84Bandarísk stjórnmál voru til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar. Bogi Ágústsson ræddi við Sigríði Rut Júlíusdóttur héraðsdómara um skautun, kjördæmabreytingar…
- Vandræðaprinsinn Andrés · 23 min · Episode 83Bresk málefni voru til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um stöðuna í…
- Hrökklast úr stjórnmálum vegna hatursorðræðu · 25 min · Episode 82Anna-Karin Hatt, leiðtogi Miðflokksins (Centerpartiet) í Svíþjóð, hættir eftir einungis fimm mánuði í starfi vegna hótana og hatursorðræðu. Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet…
- Vopnahlé á Gaza og ný bók um fjölþáttaógnir · 24 min · Episode 81Heimsglugginn hófst á umræðu um vopnahlé á Gaza sem Donald Trump Bandaríkjaforseti skýrði frá. Trump tilkynnti á samfélagsmiðlum seint á miðvikudagskvöld að tekist hefðu…
- Ógnin frá Rússlandi rædd á leiðtogafundi Evrópuleiðtoga · 23 min · Episode 80Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu fundahöld evrópskra leiðtoga í Kaupmannahöfn um fjölþáttaógnina frá Rússum. Leiðtogar Evrópusambandsins þinguðu í gær og í dag…
- Drónar, danska ríkissambandið og stórkarlalegar yfirlýsingar Trumps · 23 min · Episode 79Bogi Ágústsson ræddi fyrst við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um drónaflug í Danmörku sem Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra lýsir sem fjölþáttaárás…
- Herská Frederiksen og Bretar smjaðra fyrir Trump · 24 min · Episode 78Bogi Ágústsson fjallaði um dönsk varnarmál og heimsókn Trumps Bandaríkjaforseta til Bretlands. Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana sagði í gær að Danir ætluðu að kaupa…
- Pólitísk morð í Bandaríkjunum og stjórnmál í Noregi eftir kosningar · 23 min · Episode 77Charlie Kirk, ungur hægrisinnaður áhrifavaldur, var skotinn til bana á fundi í Utah Valley-háskólanum í Bandaríkjunum í gær. Rætt var um pólitísk morð í upphafi Heimsgluggans…
- Spennandi stórþingskosningar í Noregi · 23 min · Episode 76Norðmenn ganga til kosninga um helgina og útlit er fyrir spennandi kosningar þó að margir telji að þokkalegar líkur séu á að Jonas Gahr Støre verði áfram forsætisráðherra…








