Langsung ke konten
Global sound
Skuggavaldið

Skuggavaldið

oleh skuggavaldid

Episode terbaru
#54 - Langamma njósnari

Tentang podcast ini

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.

Framleitt af Tal.

Episode

50 episode terbaru dari 55

  • #54 - Langamma njósnari · 53 mnt · Episode 56Hylmdi breska leyniþjónustan yfir sovéskum njósnara í London? Í áratugi var Melita Norwood, elskuleg langamma sem sauð sultu og ræktaði epli í úthverfi borgarinnar, einn…
  • #53 - Mitrokhin skjölin · 56 mnt · Episode 55Vasilí Mitrokhin var skjalavörður hjá sovésku leyniþjónustunni KGB. Í tólf ár afritaði hann þúsundir skjala á laun og kom safninu að lokum með ævintýralegum hætti til Vesturlanda…
  • #52 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar - seinni þáttur · 54 mnt · Episode 54Voru leiðtogar Rauðu herdeildanna myrtir af vestur-þýska ríkinu inni í Stammheim-fangelsinu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar rekja Eiríkur…
  • #51 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar í Þýskalandi - fyrri þáttur · 54 mnt · Episode 53Var Vestur-Þýskaland eftirstríðsáranna í raun fasistaríki í dulargervi? Eiríkur og Hulda rekja vegferð Ulrike Meinhof inn í Rauðu herdeildina, RAF, og skoða þá heimsmynd sem varð…
  • #50 - Epstein og samsæriskenningarnar - seinni þáttur · 56 mnt · Episode 52Stytti Jeffrey Epstein sér aldur, eða var honum hjálpað við það? Í seinni þætti af tveimur um Epstein-málið ræða Hulda og Eiríkur hvernig frasinn „Epstein drap sig ekki“ varð að…
  • #49 - Epstein 1: Ris, fall og óútskýrð auðæfi · 49 mnt · Episode 51Jeffrey Epstein braut kynferðislega á fjölda stúlkna og ungra kvenna árum saman en naut á sama tíma verndar valdafólks og undarlega vægrar meðferðar réttarkerfisins. Hulda og…
  • #48 - Evrópusambandið og sögurnar um það · 58 mnt · Episode 50Er ESB Sovétríkin endurfædd? Eða “Fjórða ríkið”? Eiríkur og Hulda rekja hvernig þunglamalegt evrópskt skrifræði verður að uppsprettu lygilegustu hrollvekja, allt frá meintu sæti…
  • #47 - Hvað er eiginlega í gangi á Svalbarða? · 58 mnt · Episode 49Var dómsdagshvelfingin á Svalbarða reist svo heimselítan gæti náð stjórn á matvælaframleiðslu heimsins? Hulda og Eiríkur rýna inn í frosna fjallshlíð þar sem fræ frá um hundrað…
  • #46 - Stóra Tartaría - heimsveldið sem hvarf í leðjuflóði · 55 mnt · Episode 48Drukknaði eitt stærsta heimsveldi mannkynssögunnar í leðju og var kjölfarið þurrkað út úr öllum sögubókum? Hulda og Eiríkur ræða söguna um Stóru Tartaríu, eina furðulegustu og…
  • #45 - Útskiptin miklu – seinni þáttur · 54 mnt · Episode 47Umturnaði samsæriskenningin um útskiptin miklu Vestrænum stjórnmálum varanlega? Í seinni þætti af tveimur um útskiptin miklu ræða Eiríkur og Hulda hvernig óttinn um „Evrarabíu“…
  • #44 - Útskiptin miklu - fyrri þáttur · 54 mnt · Episode 46Standa íslamistar í Miðausturlöndum að því að skipta út kristnu fólki í Evrópu fyrir múslima? Jafnvel með aðstoð evrópskrar elítu? Þessi ótti er kjarninn í samsæriskenningunni um…
  • #43 - Tuskegee-rannsóknin: Þegar svart fólk var blekkt til dauða í nafni vísinda · 46 mnt · Episode 45Var svart fólk dregið til dauða í nafni vísindanna? Árið 1932 bauð bandaríska ríkið fátækum, svörtum bændum ókeypis „lækningu“ við „slæmu blóði“ sem varð upphafið að fjörutíu ára…
  • #42 - Fljúgandi furðuhlutir - seinni þáttur · 60 mnt · Episode 44Gangast ráðamenn nú við torkennilegum fyrirbærum í háloftunum? Í síðari þætti um fljúgandi furður rýna Hulda og Eiríkur í hvernig yfirvöld hafa færst frá því að mæta öllum…
  • #41 - Geimverur fyrri þáttur · 54 mnt · Episode 43Leyna yfirvōld fljúgandi furðuhlutum frá fjarlægum hnöttum? Hulda og Eiríkur rekja sögu frásagna af fljúgandi furðuhlutum, afvegaleiðingu slíkra frásagna og til þess að bandarísk…
  • #40 - Neró: Harðstjóri eða fórnarlamb slaufunarmenningar? · 60 mnt · Episode 42Spilaði Neró fiðlu á meðan Róm brann? Við kryfjum mýtur um móðurmorð, brennuna miklu og hvernig nafn keisarans varð að hinu dularfulla dulmáli 666. Var hann andkristur sjálfur…
  • #39 - Loftárás, listaverkarán og sprengjugerð á tímum átakanna á Norður-Írlandi: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, seinni hluti · 47 mnt · Episode 40Hvernig knúði kúgun Breta á Norður-Írlandi enska yfirstéttarkonu til þess að leggja frá sér tebollann og stökkva ofan í skotgrafir ÍRA? Í þessum síðari þætti af tveimur um Rose…
  • #38 - Frá höllum drottningar til skotgrafa ÍRA: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, fyrri hluti · 53 mnt · Episode 39Hvað fær enska hefðarmey til að snúa baki við uppruna sínum og gerast skæruliði ÍRA? Rose Dugdale ólst upp í bresku yfirstéttinni, en andúð á stéttakerfinu og arðráni…
  • #37 - Sölumaður óttans: Alex Jones · 44 mnt · Episode 38Hvernig fór Alex Jones að því að græða milljarða á samsæriskenningum? Í þessum þætti Skuggavaldsins rekja Hulda og Eiríkur þróun upplýsingahernaðar í samtímanum og rýna í feril…
  • #36 - Rothschild-goðsögnin – stóra skrímslið í huga samsæriskenningasmiða · 45 mnt · Episode 37Ætlar Rothschild-ættin að sölsa allan heiminn undir sig? Í þessum síðari þætti af tveimur um hina frægu Rothschild-fjölskyldu skoða Eiríkur og Hulda hvernig ættin varð að…
  • #35 - Rothschild-fjölskyldan — raunveruleikinn á bak við goðsögnina · 41 mnt · Episode 36Stýrir Rothschild-fjölskyldan seðlabönkum og styrjöldum? Eiríkur og Hulda ræða eitt stærsta nafnið í heimi samsæriskenninga: Rothschild-ættina. Sögur segja að fjölskyldan eigi…
  • #34 - Leyndardómar flugvallarins í Denver · 46 mnt · Episode 35Er heil hulduborg undir Denver-flugvelli, einskonar dómsdagsbyrgi, sem hýsa mun heimselítuna á efsta degi? Eiríkur og Hulda fjalla um hlaðborð samsæriskenninga tengdar…
  • #33 - Havana-heilkennið, seinni þáttur · 44 mnt · Episode 34Var háleynilegu hljóðvopni beitt gegn útsendurum Bandaríkjastjórnar á Kúbu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Havana-heilkennið rekjum við hvernig dularfull veikindi fóru að…
  • #32 - Havana heilkennið – fyrri þáttur · 60 mnt · Episode 33Beittu stjórnvöld á Kúbu, eða jafnvel í Rússlandi, leynilegu hátæknivopni til að slá bandaríska sendimenn í Havana út af laginu? Óútskýrð veikindi bandarískra diplómata seint á…
  • #31 - Er jólasveinninn til? · 48 mnt · Episode 32Er sagan um jólasveininn eitt útbreiddasta samsæri mannkynssögunnar? Eða er samsæriskenningin kannski sú að afneita tilvist hans? Í þessum sérstaka jólaþætti Skuggavaldsins rekja…
  • #30 - Hver felldi tvíburaturnana? — árásirnar 11. september 2001, síðari hluti · 1 jam 1 mnt · Episode 31Vissi Bandaríkjastjórn af árásunum 11. september og lét þær gerast – eða átti jafnvel sjálf hlut að máli? Í seinni þætti Skuggavaldsins um hryðjuverkin rýna Hulda og Eiríkur í…
  • #29 - Fall tvíburaturnanna — árásirnar 11. september 2001 fyrri hluti · 1 jam 5 mnt · Episode 30Voru Tvíburaturnarnir felldir í stýrðu niðurrifi? Í þessum þætti rýnir Skuggavaldið í lífseigustu samsæriskenningar um 11. september: að stjórnvöld hafi komið að sprengingu…
  • #28 - Úkraína og innrásin – vopnvæðing samsæriskenninga í Rússlandi · 55 mnt · Episode 29Var Úkraína í raun nasistaríki og peð Vesturlanda sem ógnaði Rússlandi? Eiríkur og Hulda rýna í það hvernig rússnesk stjórnvöld byggðu upp kerfisbundna frásögn þar sem…
  • #27 - Pussy Riot og Navalny – vopnvæðing samsæriskenninga í Rússlandi · 55 mnt · Episode 28Voru meðlimir Pussy Riot og andófsmaðurinn Alexei Navalny í raun útsendarar vestrænna óvina Rússlands? Eiríkur og Hulda kafa ofan í rússneska samsærisheiminn – þar sem list, trú…
  • #26 - Er jörðin flöt? — upptaka á Vísindavōku · 52 mnt · Episode 27Hvernig fékk hugmyndin um að jörðn væri flöt nýtt líf á netinu? Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann rekja söguna frá sönnunum forn-Grikkja um hnattlögun jarðar til sprellifandi…
  • #25 - Dramatísk lausn Julian Assange, seinni hluti viðtals við Kristinn Hrafnsson – WikiLeaks, fjórði þáttur · 1 jam 26 mnt · Episode 26Var dramatísk lausn Julian Assange sigur réttlætisins – eða kaldur hráskinnaleikur stórveldanna? Í fjórða og síðasta þætti syrpunnar um WikiLeaks segir Kristinn Hrafnsson frá…
  • #24 - Viðtal við Kristinn Hrafnsson fyrri hluti – WikiLeaks, þriðji þáttur · 1 jam 21 mnt · Episode 25Hvernig endaði íslenskur fréttamaður í miðju stærsta tjáningarfrelsismáls samtímans? Í þessum þætti segir Kristinn Hrafnsson frá fyrstu kynnum sínum af Julian Assange…
  • #23 - Julian Assange og andsvar stórveldanna – WikiLeaks, annar þáttur · 56 mnt · Episode 24Var Julian Assange á mála hjá Rússum eða jafnvel CIA? Sameinuðust leyniþjónustur heims kannski öllu heldur í því að þagga niður í honum? Hulda og Eiríkur rekja hvernig hetjan sem…
  • #22 - Reykjavík miðstöð uppljóstrunar aldarinnar – WikiLeaks, fyrsti þáttur · 45 mnt · Episode 23Hristi hópur hakkara við Grettisgötu stoðir mesta stórveldis heims svo mjög að það óttaðist um eigið vald? Í fyrsta þætti af fjögurra hluta syrpu Skuggavaldsins um WikiLeaks og…
  • #21 - Verstu fyrirtæki í heimi · 54 mnt · Episode 22Eru kenningar um samsæri tóbaksframleiðenda tóm tjara? Eða eru þetta kannski verstu fyrirtæki í heimi? Eiríkur og Hulda fjalla nú í fyrsta sinn um raunverulegt samsæri sem hefur…
  • #20 - Wind of change - seinni þáttur · 41 mnt · Episode 21Voru listamenn gerðir að leynivopni í kalda stríðinu? Eiríkur og Hulda kryfja sögulegar staðreyndir um það hvernig vestrænar leyniþjónustur beittu bæði bókmenntum og tónlist sem…
  • #19 - Wind of change - fyrri Þáttur · 55 mnt · Episode 20Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Hulda og Eiríkur rekja ótrúlega sögu samsæriskenningarinnar um að vestrænar leyniþjónustur hafi samið lagið Wind…
  • #18 - Efnaslóðar; að flugvélar drefi eiturefnum – seinni þáttur · 40 mnt · Episode 19Í nýlegum þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið köfuðu prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann ofan í samsæriskenninguna um að stjórnvöld séu í leyni að úða eitruðum efnum…
  • #17 - Efnaslóðar; að flugvélar dreifi eiturefnum – fyrri þáttur · 39 mnt · Episode 18Eru hvítu rákirnar sem fylgja þotum á himni í raun eiturefni, vísvitandi úðað yfir fólkið til að hafa áhrif á hegðun þess? Í þessum fyrri af tveimur þáttum Skuggavaldsins um…
  • #16 - Andlát Marilyn Monroe · 53 mnt · Episode 17Myrti mafían Marilyn Monroe? Eða stóðu Kennedy-bræður kannski að andláti hennar? Hulda og Eiríkur kafa ofan í flókið net samsæriskenninga um dularfullan dauða frægustu…
  • #15 - Illuminati goðsögnin – seinni þáttur · 47 mnt · Episode 16Var franska byltingin í raun sprottin af þýskri leynireglu? Eiga Rockefellerar, Rothschildar og rapparinn Jay-Z það sameiginlegt að vilja koma á fót nýrri heimsskipan? Og hvernig…
  • #14 - Illuminati leynireglan – fyrri þáttur · 42 mnt · Episode 15Stýrir Illuminati bræðrareglan frá Bæjaralandi heimsviðburðum – allt frá frönsku byltingunni til Kardashian-fjölskyldunnar? Í þessum fyrri af tveimur þáttum um Illuminati kafa…
  • #13 - Kennedy bölvunin - þriðji þáttur · 45 mnt · Episode 14Létu valdaöfl í Repúblíkanaflokknum myrða Robert F. Kennedy Sr til að koma í veg fyrir að Kennedy-fjölskyldan snéri aftur á forsetastól? Í lokaþætti þríleiks Skuggavaldsins um…
  • #12 - Kennedy bölvunin - annar þáttur · 51 mnt · Episode 13Leyndu bandarísk stjórnvöld upplýsingum um raunverulegan morðingja John F. Kennedy? Í öðrum þætti þríleiks um Kennedy-bölvunina kafa Eiríkur og Hulda ofan í sígildar…
  • #11 - Kennedy bölvunin - fyrsti þáttur · 44 mnt · Episode 12Myrti mafían John F. Kennedy? Eða CIA ? Stóð Castro á Kúbu kannski á bak við morðið? Hverjir höfðu mest að græða á því að þagga niður í forsetanum sem ætlaði að umbylta…
  • #10 - Trump samsæriskenningar 2.0 · 37 mnt · Episode 11Snúinn aftur á forsetastól í BNA hefur Trump lyft samsæriskenningum upp í hæstu hæðir valdsins. Í þættinum fjalla Eiríkur og Hulda um hvernig Trump hefur breytt samsærisórum í…
  • #9 - Trump samsæriskenningar 1.0 · 50 mnt · Episode 10Gróf djúpríkið í Bandaríkjunum undan árangri Donalds Trumps á fyrri forsetatíð hans?Eitt helsta sérkenni Trumps sem stjórnmálamanns er hvernig hann hefur gert samsæriskenningar…
  • #8 - Dauði Kurt Cobain · 44 mnt · Episode 9Stóð Courtney Love, eiginkona Kurt Cobain, forsöngvara hinnar íkonísku grunge hljómsveitar, Nirvana, að baki dauða hans árið 1994 vegna öfundar og erfðamála? Eða komu yfirvöld…
  • #7 - Ný heimsskipan part 2 · 43 mnt · Episode 8Stýrir leynileg valdaelíta alþjóðstofnunum á borð við ESB og SÞ á bak við tjöldin? Stóð hún kannski að baki bæði fyrri heimsstyrjöld og uppgangi nasismans til að skapa ringulreið…
  • #6 - Ný heimsskipan part 1 · 47 mnt · Episode 7Stýrir leynileg valdaelíta heiminum? Mun hún hneppa veröldina í ánauð? Í þættinum leiða Hulda og Eiríkur hlustendur í gegnum sögu og einkenni hinnar frægu samsæriskenningar um…
  • #5 - Qanon samsæriskenningin part 2 · 53 mnt · Episode 6Stal djúpríkið í Bandaríkjunum forsetakjörinu úr réttkjörnum höndum Donalds Trumps árið 2020? Lágu djöfladýrkandi barnaníðingar í elítu Demókrataflokksins þar undir steini? Í…

Live, satu jam terakhir: 2.219 lagu di 7.706 stasiun di 142 negara

Jelajahi dunia lewat radio

Cara lain untuk menjelajah (9)

Dengar sesuatu yang bagus? Simpan, atau langsung buka di Spotify.

Radio 538 luisteren - Live!Populer sekarang