Siirry sisältöön
Global sound
Þetta helst

Þetta helst

Deilur um umdeildan dansara

· 23 min · Jakso 786

Jakson kuvaus

Deilur hafa staðið yfir í samfélagi samkvæmisdansara í Reykjavík sem hverfast um mann á miðjum aldri sem hefur verið vændur um meinta ósæmilega og meinta ólöglega hegðun gegn unglingsstúlkum. Hann hefur verið dansari í áratugi og tekið þátt í keppnum og orðið Íslandsmeistari auk þess sem hann hefur þjálfað börn og unglinga.

Umræddur maður hefur verið kærður til lögreglu vegna hegðunar sinnar, síðast árið 2021, en kærunum hefur verið vísað frá. Deilan snýst um það hvort hægt sé að banna manninum að vera félagsmaður og iðkandi í skráðu íþróttafélagi, Dansfélagi Reykjavíkur. Félagið er aðili að Íþróttasambandi Íslands og er því háð lögum, reglum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.

Dómstóll ÍSÍ hefur ítrekað dæmt manninum í hag og sagt að ekki sé hægt að banna honum að vera félagi í Dansfélagi Reykjavíkur. Forsvarsmaður dansfélagsins, Kara Arngrímsdóttir, er ekki sátt við stöðu málsins og telur ekki hægt að maðurinn fái að iðka dans innan félagsins. Rætt er við Köru og Örnu Sif Haukstein Knútsdóttur sem kærði manninn til lögreglu árið 2021.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsosn

Sivusto: ruv-radio.akamaized.net

Livenä, viimeisin tunti: 14 473 kappaletta 7 095 asemalla 138 maassa

Löydä maailma radion kautta

Lisää tapoja löytää (7)

Kuulitko jotain hyvää? Tallenna se tai avaa se suoraan Spotifyssa.

★ Artist of the week The fastest riser on the radio this week
Your song here? From € 9 per week →
RADIO MONTESTELLA MILANOJatka kuuntelua