Saltar al contenido
Global sound
Víðsjá

Víðsjá

Fullkomnun e. Vincenzo Latronico/ Svipmynd af bók

· 52 min · Episodio 642

Notas del episodio

Víðsjá hefur verið með hugann við bók síðustu daga: Fullkomnun eftir Vincenzo Latronico sem kom fyrst út á Ítalíu 2022. Hún var tilnefnd til Booker-verðlauna í fyrra og kom nýverið út í íslenskri þýðingu Þóru Arnórsdóttur. Í bókinni segir Latronico sögu ungs pars sem leitar hamingjunnar í heimi sem hefur færst að miklu leyti yfir á internetið. Þau vinna á netinu og hafa komið sér fyrir í Berlín í rótlausum heimi innflytjenda, en líta þó líta ekki beint á sig sem innflytjendur. Anna og Tom eru af þúsaldarkynslóðinni, vinir þeirra eru að flytja í eigið húsnæði, gifta sig og eignast börn, en þau er í sjálfskipaðri útlegð langt frá heimahögum. Að fullkomna áreynslulaust lífið virðist vera markmið þeirra og þau eru dugleg við að deila myndum af huggulegri íbúð með monsterum og fullkomnu kaffi með ristuðu avocado súrdegisbrauði. Bókin er óður til Hlutanna eftir George Perec sem kom út árið 1965 í Frakklandi og fjallar um ungt par í leit að hamingjunni í neyslusamfélagi eftirstríðsáranna í París.
Þáttur dagsins er lagður undir samtal um Fullkomnun með Þorvaldi Sigurbirni Helgasyni skáldi, Magneu Guðmundsdóttur arkitekt og Birni Teitssyni borgarfræðingi. Við ræðum svo við Þóru Arnórsdóttur þýðanda verksins í Víðsjá á morgun.

Web: ruv-radio.akamaized.net

En directo, última hora: 11.962 canciones en 5.613 emisoras de 137 países

Descubre el mundo a través de la radio

Más formas de descubrir (7)

¿Has oído algo bueno? Guárdalo o ábrelo directamente en Spotify.

★ Artista de la semana El que más sube en la radio esta semana
¿Tu canción aquí? Desde € 9 por semana →
Radio Jazz Gold FMSeguir escuchando