Skip to content
Global sound
Auðnast

Auðnast

by Ghost Network®

Latest episode
Uppsagnir og sálfélagsleg skuld á vinnustöðum

About this podcast

Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi.
Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi.

Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi.

Auðnast er fyrir þau sem vilja:
- skilja eigin líðan og samskipti betur
- takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð
- byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl
- sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti

Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd.
Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari.

Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.

Episodes

  • Uppsagnir og sálfélagsleg skuld á vinnustöðum · 38 min · Episode 35Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvað gerist þegar fólki fækkar á vinnustað en verkefnin, ábyrgðin og væntingarnar standa eftir. Þær kynna til leiks hugtakið sálfélagsleg…
  • þegar gervigreindin mætir í vinnuna, hvað verður um okkur? · 41 min · Episode 34Ragnhildur og Hrefna ræða hvað gerist innra með fólki þegar gervigreind kemur inn á vinnustaðinn. Sama breyting getur vakið létti og forvitni hjá einum en óöryggi og ótta hjá…
  • Erfið samskipti og áhrif þeirra · 34 min · Episode 33Erfið samskipti eru ekki bara óþægileg heldur líka orkufrek. Við skoðum ólíkar útgáfur af erfiðum samskiptum og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Við rýnum í…
  • Fjarvistir á vinnustað · 48 min · Episode 32Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð.Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi…
  • Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum · 55 min · Episode 31Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og…
  • Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma · 39 min · Episode 30Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um…
  • Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað · 44 min · Episode 29Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun…
  • Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað · 45 min · Episode 28Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á…
  • Reiði – ógn eða leiðarvísir? · 46 min · Episode 27Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af…
  • Hamingja í vinnu - Markmið eða óraunhæf krafa? · 50 min · Episode 26Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar…
  • Sjálfstraust · 43 min · Episode 25Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og…
  • Allt sem þú þarft að vita fyrir aðventuna · 41 min · Episode 24Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur…
  • Ágreiningur - allt sem þú þarft að vita · 51 min · Episode 23Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í…
  • Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar · 47 min · Episode 22Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum…
  • Frá innri ró til ytri áhrifa: sjö lykilþættir í leik og starfi · 44 min · Episode 21Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu…
  • Bjargráð: Lausnamiðuð, tilfinningaleg og minna gagnleg · 46 min · Episode 20„Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig…
  • Sálfélagslegt öryggi á vinnustað · 48 min · Episode 19Hvað þarf til þess að fólki líði vel á vinnustað? Kannski er það ekki bara jógasalur eða hópefli heldur grunnstoðir í skipulagi og vel upplýstir stjórnendur. Við tölum um það sem…
  • Tilfinningagreind · 42 min · Episode 18Við ræðum hvað tilfinningagreind er út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig við getum verið misgóð í henni eftir því í hvaða hlutverkum við sinnum. Við skoðum líka mat á eigin…
  • Stöðutékk - á þér... · 39 min · Episode 17Við ræðum einfaldar leiðir til að taka stöðu á sér persónulega og hvers vegna við erum líkleg til þess að festast í sama mynstrinu aftur og aftur. Við skoðum vanabrautir og…
  • Sumarfrí sem streituvaldur · 29 min · Episode 16Við ræðum hvers vegna sumarfrí er stundum streituvaldur bæði út frá starfshlutverkinu en ekki síður út frá fjölskyldulífinu. Við skoðum líka fjögur gagnleg ráð sem geta nýst þér…
  • Að vinna með einhverjum sem þér líkar ekki við. · 29 min · Episode 15Í þessum þætti förum við yfir reynslu sem mörg þekkja en fá kannski ræða opinskátt. Hvað gerum við þegar okkur líkar ekki vel við samstarfsfélaga. Við köfum beint í kjarnann…
  • Framhjáhald – út frá sjónarhóli þess sem haldið er framhjá · 44 min · Episode 14Í þessum þætti förum við yfir algenga upplifun og líðan hjá fólki sem haldið er framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt.
  • Samskipti - Mikilvægasta verkfærið á vinnustaðnum · 33 min · Episode 13Í þessum þætti förum við yfir víðan völl þegar kemur að samskiptum á vinnustað, hvaða áhrif ógagnleg samskipti hafa á líðan starfsfólks og hvaða leiðir eru farsælar til þess að…
  • Hvar tilheyrir þú og skiptir það máli fyrir heilsuna? · 34 min · Episode 12Í þessum þætti förum við yfir það að tilheyra og hversu djúpstæð þörf það er innra með okkur. Við skoðum hvað gerist ef við upplifum að við tilheyrum ekki bæði í einkalífi og…
  • Framhjáhald – sá sem heldur framhjá · 39 min · Episode 11Í þessum þætti förum við yfir hvers vegna fólk heldur framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt. Grein sem við mælum með: Love…
  • Skugggahliðar stjórnenda - einkenni og afleiðingar · 35 min · Episode 10Í þessum þætti förum við yfir þegar styrkleikar stjórnenda breytast í skuggahliðar og hvaða afleiðingar það hefur á starfsfólk. Grein sem við mælum með: Twenty years on the dark…
  • Heilsustraumar á vinnustöðum - Hvað hefur verið vinsælt og hvað mun gerast á næstu árum? · 27 min · Episode 9Í þessum þætti rýnum við í hvað hefur verið ríkjandi á vinnustöðum í heilsu og velferðarúrræðum síðastlðin ár. Við kíkjum líka örlítið í spádómskúluna og spáum fyrir líklegum…
  • Gremja – gagnlegt verkfæri eða gallagripur · 40 min · Episode 8Í þessum þætti förum við yfir hvað gremja er og hver er algeng uppspretta hennar. Við stiklum líka á stóru hvernig hægt er að draga úr gremju þegar hún er okkur ógagnleg og…
  • Hvíld - Mikilvægasta verkfærið til þess að ná árangri? · 41 min · Episode 7Hvíld er mikilvæg grunnforsenda þegar kemur að því að nýta sköpunargleði, efla þrautseigju og komast farsællega gegnum streituvaldandi tímabil. Í þessum þætti verður farið yfir…
  • Mörk - Mýtur og praktísk ráð · 43 min · Episode 6Að setja mörk er eitthvað sem við þekkjum öll en i þessum þætti förum við yfir það hvernig mörk eru mikilvæg þegar kemur að heilbrigði og vellíðan.
  • Parsambönd- Hvernig líður ykkur í samskiptum? · 39 min · Episode 5Parsambönd- Hvernig líður ykkur í samskiptum? Við skyggnumst inn á Auðnast klíník og förum yfir algengar áskoranir í parsamböndum þegar kemur að samskiptum. Við skoðum ógagnlegar…
  • Félagsleg heilsa – Ertu nokkuð að gleyma henni? · 42 min · Episode 4Félagsleg heilsa – Ertu nokkuð að gleyma henni? Í þessum þætti ræðum við um mikilvægi félagslegra tengsla bæði í vinnu og einkalífi. Við skoðum hvað einkennir góða félagslega…
  • Þrautseigja – Er hægt að þjálfa það? · 32 min · Episode 3Þrautseigja – Er hægt að þjálfa það? Í þessum þætti beinum við athyglinni að því hvernig best er að takast á við krefjandi aðstæður á sem heilbrigðastan hátt, þannig að það…
  • Kulnun - Hvað er mikilvægt að vita? · 43 min · Episode 2Kulnun – Hvað er mikilvægt að vita. Í þessum þætti köfum við ofan í viðfangsefnið kulnun og hvernig það getur birst með margvíslegum hætti inn á vinnustað. Við ræðum hvað…
  • Geðheilbrigði og vinnustaðurinn · 32 min · Episode 1Geðheilbrigði og vinnustaðurinn. Í þessum þætti ræðum við hvers vegna það skiptir máli að vinnustaðir hlúi að geðheilbrigði starfsfólks, skoðum rannsóknir og kynnum praktísk ráð…

Live, last hour: 2,124 songs on 7,706 stations in 142 countries

Discover the world through radio

More ways to discover (9)

Heard something good? Save it, or open it straight away in Spotify.

Radio 538 luisteren - Live!Popular right now